Ósáttir að vera krafðir um endurgreiðslu/"Lítið dregur auman",segir máltækið!!!

Innlent | mbl.is | 29.7.2009 | 15:38
Frá húsnæði Tryggingastofnunar.Nú um mánaðarmótin munu þúsundir öryrkja og ellilífeyrisþega fá bréf frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) þar sem þeir verða krafðir um endurgreiðslu á bótum vegna fjármagnstekna. Frítekjumark vegna fjármagnstekna er einungis krónur 97.000 á ári. Þetta kemur fram í ályktun frá Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökum eldri borgaraLandssamtökum eldri borgara.

„Margir hafa með ráðdeild og hagsýni náð að búa sér til varasjóð til að bregðast við óvæntum aðstæðum eins og auknum kostnaði vegna tannviðgerða eða til að sinna viðhaldi húsnæðis síns og bifreiða.

Því munu endurgreiðslukröfur TR koma illa við marga og minnir Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) og Landssamband eldri borgara (LEB) á að öryrkjar og ellilífeyrisþegar hafa nú þegar orðið fyrir miklum skerðingum hjá TR og lífeyrissjóðum svo ekki sé talað um þær almennu hækkanir sem allir landsmenn hafa fundið fyrir undanfarna mánuði

ÖBÍ og LEB benda á að ekki séu samræmdar reglur vegna fjármagnstekna milli atvinnulausra, námsmanna og lífeyrisþega. Atvinnulausir mega hafa 59.000 í fjármagnstekjur á mánuði áður en bætur skerðast. Fjármagnstekjur hafa ekki áhrif á lánveitingu frá LÍN.

ÖBÍ og LEB fara því fram á við félags- og tryggingamálaráðherra að skerðingar vegna fjármagnstekna verði endurskoðaðar með það að markmiði að draga úr þeim þannig að lífeyrisþegum sé ekki refsað jafn grimmilega og nú er gert fyrir að eiga varasjóði inni á bankabókum," að því er segir í ályktun//Er þetta það sem koma skal að við megum ekki eiga fyrir útförinni okkar í varsjóð eða annað sem kemur uppá/þetta er hámark skammarinnar/Halli gamli


mbl.is Ósáttir að vera krafðir um endurgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Mogginn er búinn að finna þá sem ollu hruninu mig hafði lengið grunað þetta lið. Það var aldrei á Bessastöðum, hélt ekki gullflöguveislur, sást ekki í snekkjum eða þyrlum. Þarf að segja meira.

Finnur Bárðarson, 29.7.2009 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband