270 bankamenn með yfir milljón/af hverju ekki að birta tekjulæksta fólkið einnig!!!

Innlent | mbl.is | 31.7.2009 | 8:08
Mynd 487961Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var tekjuhæstur Íslendinga í fyrra með 35.818.000 króna mánaðarlaun. Ekki færri en 270 starfsmenn fjármálafyrirtækja voru með meira en eina milljón króna í laun á mánuði í fyrra, í úttekt Tekjublaðs Tekjublaði Frjálsrar verslunar eru birtar tekjur 2.700 Íslendinga. Þar eru greindar tekjur fólks í ýmsum starfsgreinum. Ljóst er að starsmenn fjármálafyrirtækja hafa borið mikið úr býtum í fyrra. Auk Hreiðars Más voru tveir bankamenn með meira en tíu milljónir á mánuði að meðaltali.

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var með 22,899 milljónir og Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi forstjóri Landsbankans með rúmar 12 milljónir. Alls voru 73 starfsmenn fjármálafyrirtækja með þrjár milljónir eða meira á mánuði í laun.

Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group, var launahæstur forstjóra í fyrirtækjum með 12,1 milljón á mánuði. Magnús Bjarnason, forstjóri Capacent Glacier var með 9,7 milljónir og Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Stoða með 9,2 milljónir á mánuði.

 

Tryggvi Þór Herbertsson, nýorðinn alþingismaður og fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra, var tekjuhæstur í hópi alþingismanna, ráðherra og forseta Íslands með 2,9 milljónir á mánuði.  Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var með 1.839 þúsund á mánuði.

Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi í Árborg, er tekjuhæstur sveitarstjórnarmanna með 2.456 þúsund á mánuði og Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍS, tekjuhæstur starfsmanna hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins.

Könnun blaðsins byggist á álögðu útsvari eins og það birtist í álagningarskrám. Blaðið setur þann fyrirvara að um sé að ræða skattskyldar tekjur á árinu 2008 og þær þurfi ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn geti falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Þá kunni í launum sumra að vera innifaldir kaupaukar vegna ársins 2007.

Þá er tekið fram að í tölunum séu ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Reynt var að skrá menn í flokka samkvæmt þeim störfum sem þeir gegna nú.  Einnig er minnt á að nokkuð hafi verið rætt um villur í álagningu skattstjóra og að kærufrestur sé ekki runninn út. Álagning sé því ekki endanlegFrjálsrar verslunar/Málið er að allt fór úr böndum her og það búið og gert,en ekki allir á eitt sáttir hverjum hvað er að kenna,auðvitað eru margir sekir og það ber að láta þá gjalda þessa,það er bara svo svifaseint þetta kerfi okkar að gera það!!! Þarna eru flestir eitthvað sekir sem tóku þátt, nema kannski V.G. þó ekki alveg,en nú er komin á hrein vinstri stjórn og menn skyldu nú ætla að þeir tækju á málum okkar sem mynna höfum ,nei það gera þeir ekki,heldur taka af okkur fengin hlut ,þegar maður er ekki að verja græðgina sem hefur verið,hvernig er þá hægt að haga sér svona af flokkum sem berjast fyrir lítilmagnanum ,hvar sem hann er í pólitík,þetta sem þar er að ske er skömm og niðurlæging fyrir okkur sem erum lyfeyrisþegar og öryrkjar og höfum rétt til hnífs og skeiðar,Hválikt og annað eins er ekki verjandi,það ætti að birta tekjur okkar sem minnst hafa það er malið nuna/en þeir vilja ekki vita það/Halli gamli


mbl.is 270 bankamenn með yfir milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband