Clinton semur við N-Kóreu/það er hægt að semja við flesta,sé jafnræðis gætt!!!

Clinton semur við N-Kóreu
Erlent | AFP | 4.8.2009 | 20:37
Bill Clinton ásamt Kim Jong-il í Pyongyang í dag. Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, tryggði í óvæntri heimsókn sinni til N-Kóreu að tvær bandarískar fréttakonur yrðu látnar lausar eftir að hafa átt fund með leiðtoga landsins, Kim Jong-II í höfðuborginni

Í N-Kóreu var greint frá því að Clinton hefði flutt Kim sérstök skilaboð frá Barrack Obama, Bandaríkjaforseta, í sögulegri heimsókn sinni sem kom í kjölfar mikillar spennu vegna kjarnorkutilrauna og eldflaugatilraunar sem talsmenn Hvíta hússins neita.

Kim samþykkti að náða sjónvarpsfréttakonurnar Laura Ling og Euna Lee eftir að Clinton „baðst einlægrar afsökunar“ á „fjandsamlegu athæfi“ þeirra, að sögn opinberrar fréttastofu N-Kóreu.

Sjónvarpsfréttakonurnar Lee and Ling gætu verið á heimleið á morgun.

 

Eftir að Kim hafði lýst yfir náðun þeirra hafi Clinton flutt munnleg skilaboð frá Barack Obama, Bandaríkjaforseta, með einlægum þökkum fyrir náðunina og setti fram sjónarmið um að bæta samskiptin milli þjóðanna. Talsmenn Hvíta hússins bera til baka að skilaboðin hafi verið með þessum hætti.

Fréttastofan n-kóreska gat þess ekki hvenær fréttakonurnar yrðu látnar lausar. Bandaríska ABC-sjónvarpsstöðin segir hins vegar að Bill Clinton hafi hitt Ling (32 ára) og Lee (36 ára) á afar tilfinningaþrungnum fundi og segir að þær verði komnar til Bandaríkjanna á morgun, miðvikudag, sama dag og heimsókn Clintons lýkur.
Pyongyang/þetta synir að það er hægt að semja við flesta,ef rétt er á haldið,vonadi að þetta sé byrjumn á samningum um fleira/Halli gamli


mbl.is Clinton semur við N-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045653

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband