Erilsamt á höfuðborgarsvæðinu í nótt/þetta færist i aukana/atvinnuleysið !!!!!!

Innlent | mbl.is | 21.8.2009 | 6:58
Mynd 507252 Nokkuð erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Ferðaklósett við Esjurætur eyðilögðust í eldi í gærkvöldi. Par var handtekið er það reyndi að versla með stolið greiðslukort. Tvö innbrot tilkynnt

Tilkynnt var um eld í ferðaklósetti við Esjurætur í gærkvöldi og eru þau nú talin ónýt. Þá var tilkynnt um að hjólhýsi hefði fokið út af Vesturlandsvegi í Kollafirði, á hæðinni við Kjalarnesið. Er hjólhýsið talið ónýtt. Var mjög vindasamt er þetta gerðist og fóru hviður upp í 30 metra á sekúndu.

Rétt fyrir eitt var svo hringt í lögreglu úr versluninni Lyfju. Þar var par sem vildi versla með stolið greiðslukort. Hafði parið stolið því af manni sem hafði skutlað því. Gista þau nú fangageymslur.

Stuttu síðar var tilkynnt um að bifreið hefði ekið utan í vegrið á Vesturlandsvegi, við Höfðabakkabrú. Ekkert var um slys á fólki en eignatjón er nokkuð þar sem vegriðið er ónýtt á hundrað metrakafla og bifreiðin er talsvert skemmd. Talið er að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri.

Í nótt var tilkynnt um innbrot í Fiskó við Dalveg. Þar hafði útihurð verið spörkuð upp en ekki var þó farið inn. 

Klukkan hálf fjögur var tilkynnt var um að tveir menn hefðu sést á hlaupum frá kaffihúsinu Babalú við Skólavörðustíg. Reyndust þeir hafa komist inn og náð einhverju af peningum. Mennirnir komust undan.

Sömuleiðis var brotist inn í söluturn við Jaðarsel. Höfðu þjófarnir á brott með sér sjóðsvél, símakort, skiptimynt og eitthvað smávægilegt.

Óvenjumargir gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt, bæði þeir sem höfðu verið teknir fyrir ýmis brot sem og útigangsmenn.//Með auknu atvinnuleysi mun þetta verða svona framhaldi ,mjög svo slæmt mál að eignir okkar skuli alltaf vera i hættu,svo er niðurskurði á Löggæslu kennt um ,auðvitað ber að skoða það en það er betra að auka atvinnu og gera eitthvað til að fólk fái vinnu annað en að drekka Dópa og brjótast inn,Þjóðflegið logar allt í illdeilum um að við borgum skuldir óreiðumanna,alþingismenn eru þar að takast á og vinna á móti þjóð sinni/er þetta til að bætta óráðsíuna/Halli gamli


mbl.is Erilsamt á höfuðborgarsvæðinu í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband