Verður Ingibjörg Ragnheiður Ungfrú alheimur?

Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 22.8.2009 | 8:30
Ingibjörg Egilsdóttir á æfingu fyrir keppnina.Á MORGUN kemur í ljós hvort Íslendingar eignist næstu Ungfrú alheim/Miss Universe 2009. Þá keppir Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir um titilinn eftirsótta á Bahamaeyjum ásamt 83 öðrum stúlkum frá jafnmörgum löndum.

Ragnheiður býr á Höfn í Hornafirði og tók þátt í Ungfrú Ísland fyrir hönd Austurlands árið 2008, hún lenti þá í öðru sæti. Hún átti að taka þátt í Ungfrú alheim í fyrra en hætti við það vegna persónulegra ástæðna. Ákveðið var því að senda hana út í ár sem fulltrúa Íslands en ekki eru reglur um það að stúlkurnar þurfi að hafa tekið þátt í sinni heimakeppni sama ár og keppninni úti. Enda keppnirnar haldnar á mismunandi tímum ársins um allan heim.

Ingibjörg er verðugur keppandi Íslands og hefur skarað fram úr stúlknahópnum á Bahamaeyjum. Í gær var hún í fimmtánda sæti í kosningu á heimasíðu Miss World og ef marka má ummæli á Facebook og öðrum samskiptasíðum þar sem fjallað er um fegurðarsamkeppnina er hún sigurstrangleg. Helsti keppinautur Ingibjargar er sögð Sandra Vinces frá Ekvador. Gaman verður að sjá hvort Dayana Mendoza frá Venesúela, krýnir Ingibjörgu arftaka sinn á morgun en NBC sjónvarpar keppninni sem er með áhorf á heimsvísu og sérstaklega þykir hún vinsæl í S-Ameríku/þetta væri frábært ef yrði þetta er mjög svo frambærileg stúlka og vonum við að hún vinni þetta,það væri gaman og heiður/Halli gamli


mbl.is Verður Ingibjörg Ragnheiður Ungfrú alheimur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045665

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband