Greiðsluviljinn að hverfa/engin furða allt laust i böndum,ekkert gert!!!!!

Innlent | Morgunblaðið | 27.8.2009 | 5:30
Mynd 500871„Við erum bara að reyna að halda sjó. Maður heyrir í fréttunum að það eigi að hjálpa þeim sem skulda mest, en hvað með þá sem rétt hanga á þræðinum?“ spyr Þorgeir Valsson, fjHann er kvæntur og eiga þau hjónin tvær ungar dætur.

„Við erum sem betur fer enn bæði með vinnu,“ segir Þorgeir. „Það er ýmislegt sem er farið að gera okkur erfitt fyrir þó að við séum ennþá í skilum með allt,“ segir hann. „Konan er núna í fæðingarorlofi og bara það að önnur stelpnanna byrjar á leikskóla þegar hún fer að vinna og hin fer til dagmömmu klárar launin hennar.“

Þorgeir og kona hans keyptu íbúð fyrir tæpum átta árum á 6,7 milljónir. Sjálfur átti hann 2 milljónir en það sem upp á vantaði var fengið að láni hjá Íbúðalánasjóði. „Og lánið stendur núna í 8,7 milljónum!“ segir Þorgeir. Íbúðin er orðin allt of lítil fyrir fjölskylduna og hún hefur verið á sölu í rúmt ár. Nú segir Þorgeir stöðuna vera þá að þau bjóði íbúðina gegn yfirtöku skulda. Þó að þau haldi sjó enn má ekkert út af bera til að þau sjái ekki fyrir endann á málunum. Þau hafa lifað spart og ekki leyft sér neitt umfram nauðsynjar. „Við sjáum það um hver mánaðamót að það er alltaf minna og minna eftir. Það endar með því að við gefumst upp á þessu, það er bara allur greiðsluvilji að hverfa.“ Tilfinningarnar sem Þórir segir bærast með sér vegna stöðunnar eru fyrst og fremst mikil reiði.

Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir stofnunina starfa samkvæmt settum lögum og ekkert liggi fyrir um lánabreytingar eða afskriftir. Slík ákvörðun verði að koma frá stjórnvöldum. Minna sé um vanskil hjá sjóðnum en bönkunum, enda hafi sjóðurinn boðið hefðbundin verðtryggð lán og takmarkað hámarkslán. Áform Íslandsbanka eða annarra banka kalli ekki á nein skyndiviðbrögð af hálfu Íbúðalánasjóðs, stjórnvöld verði að leggja línuna.

Hermann Björnsson hjá Kaupþingi segir það staðreynd að lántakendur bíði margir eftir almennum aðgerðum.

Bankarnir hafa kallað eftir skýrri stefnu frá stjórnvöldum um hvort og til hvaða ráðstafana verði gripið til að koma til móts við skuldara. Bent hefur verið á að ríkið komi að öllum stærstu lánveitendunum og gæta þurfi jafnræðis milli lántakenda.

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að ekki megi mismuna fólki með þeim ráðstöfunum sem bankarnir grípa til hver fyrir sig.///Svona er þetta því miður ekkert fast i hendi með að fá aðstoð,svona gengur ekki lengur að bankarnir skuli bara vilja ger þetta eftir eigin höfði,og svo verða menn bar að missa sitt ef þeim ekki þóknast viðkomandi/um þetta verður að fjalla núna strax en ekki biða með að allir missi sitt, sem eru i þessari stöðu ,og það er margir,kannski þessi Ríkisstjórn vilji ekkert gera ,bara láta þetta ske sí svona/Halli gamli


mbl.is Greiðsluviljinn að hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045730

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband