Icesave-umræðu að ljúka/sjálfstæðismenn i uppgjöf ,og ættla að samþykkja!!!

Innlent | mbl.is | 27.8.2009 | 18:04
Jóhanna Sigurðardóttir blaðar í skjölum á Alþingi. Þingfundi var slitið á Alþingi klukkan 18 í kvöld en þriðja og síðasta umræða um ríkisábyrgð vegna Icesave-lánasamningana hófst í morgun. Þegar fundi var slitið voru þrír þingmenn á mælendaskrá: Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Bjarni Benediktss

Fundur hefur verið boðaður á Alþingi klukkan 10:30 á morgun og verða þá greidd atkvæði um breytingartillögur, sem meirihluti og minnihluti fjárlaganefndar hafa lagt fram við frumvarpið. Síðan verða greidd atkvæði um frumvarpið í heild.

Á dagskrá þingfundar á morgun eru einnig frumvörp um tilfærslu á verkefnum ráðuneyta, frumvarp um upplýsingar um fjárframlög til stjórnmálaflokka á árunum 2002-2006 og frumvarp um að ríkissjóður fái heimild til að taka  290 milljarða króna að láni til að styrkja gjaldeyrisforðann og að Landsvirkjun fái að taka 50 milljarða að láni.

Fundum þingsins verður síðan frestað til 1. október en þá verður þingið sett að nýju og fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár lagt fram.///Uppgjöf minna manna Sjálfstæðismanna er algjör eða svo finnst manni,þetta er ekki nógu vel útfarið að við eigum að samþykkja þetta,það kom maður eftir mann í mínum flokki og sagði það sama,við erum með nýjan samning eða svoleiðis,þessu hefur verið breitt svo mikið,en ekki nóg að mínu áliti og fleiri,en skoðum málið á morgunn og sjáum hvernig kosningin fer,óánægður /Halli gamli


mbl.is Icesave-umræðu að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1045705

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband