Toyota samþykkir ekki Landsbanka sem eiganda/mörgu leiti skiljanlegt!!!!

Viðskipti | Morgunblaðið | 2.9.2009 | 5:30
Mynd 505804Áhugi var fyrir því innan skilanefndar Landsbankans að taka yfir Toyota á Íslandi, vegna skuldar félagsins Smáeyjar sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar. Stjórnendur í höfuðstöðvum Toyota í Evrópu töldu að banki væri ekki hæfur innflutningsaðili fyrir Toyota-bifreiðarnar og því var hugsanleg yfirtaka andvana fædd, samkvæmt upplýsingum Morgunb

Toyota gerir samninga við innflutningsaðila í þeim löndum þar sem fyrirtækið flytur ekki sjálft inn bíla, eins og t.d. á Íslandi. Toyota í Evrópu setur ekki nein fyrirfram gefin skilyrði sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að fá sérstakan sérleyfissamning heldur er það metið í hvert og eitt skipti, samkvæmt upplýsingum frá Toyota á Íslandi. Höfuðstöðvar Toyota eru í þeirri aðstöðu að geta afturkallað leyfi til innflutnings á bifreiðunum hér á landi.

Skilanefnd Landsbankans hafði í hyggju að ganga að veðum í Toyota vegna lánveitinga til Smáeyjar ehf., fjárfestingarfélags Magnúsar, en Smáey keypti allt hlutafé í P. Samúelssyni, sem átti Toyota á Íslandi, árið 2005 og voru kaupin m.a. fjármögnuð með láni frá Landsbankanum.

Toyota á Íslandi er eitt margra félaga sem skilanefndin hefur veð í vegna skulda félaga í eigu Magnúsar, en í svipaðri stöðu er Domino's Pizza á Íslandi, sem er einnig undir óbeinum yfirráðum skilanefndar Landsbankans. Að sögn Páls Benediktssonar, talsmanns skilanefndar Landsbankans, hafa engar skuldir félaga í eigu Magnúsar verið afskrifaðar. Skilanefndin á sem stendur í viðræðum við Magnús vegna skulda sem eru á fimmta tug milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur ekki verið gengið að neinum veðum vegna skuldanna.

Skilanefndin hefur tvo valkosti til að verja hagsmuni sína vegna lánveitinganna, þ.e. að leyfa Magnúsi að reka félögin áfram gegn niðurfellingu hluta skuldanna eða taka félögin yfir. Sama hvor leiðin verður farin mun skilanefndin þurfa að afskrifa einhvern hluta skuldanna þar sem lán til félaga í eigu Magnúsar voru mörg hver veitt þegar verðbólan í íslensku efnahagslífi var sem stærstlaðsins///   Þetta erfitt mál svo mjög,það er ekki von að Toyota sjálft frá Japan vilji að Landsbanki reki þetta eftir það sem á undan er gengið??? að mörgu leiti er þetta skiljanlegt/en að fella niður skuldir í þessu tilfelli er mikið spurning,þeir yfirtóku Heklu bankarnir/það gengur en svona er þetta mjög svo viða og ber að reka fyrirtækin ef hægt er, annars er ekki annað en að gera þau upp,eða hvað ekki eigum við að borga almenningur,meinum að' við gerum það hvort sem er ??? þetta er erfitt mál mjög/Halli gamli


mbl.is Toyota samþykkir ekki Landsbanka sem eiganda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband