Mistök að nýta ekki auðlindirnar/þetta hljóta Steingrímur og Jóhanna að hlusta á!!!

Viðskipti | mbl.is | 7.9.2009 | 13:31
Joseph Stiglitz, ásamt Lilju Mósesdóttur og Jóni...Það væru mikil mistök ef Íslendingar myndu ekki nýta þær auðlindir sem þeir hafa yfir að ráða við núvernadi aðstæður. Þetta var meðal þess sem bandaríski hagfræðingurinn Joseph Stiglitz, sagði í erindi sínu á opnum fundi í Háskóla Íslands um Ísland og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í dag.

Stiglitz sagði að helstu grunnþættir í íslensku þjóðfélagi væru mjög traustir. Tækifærin séu mörg og þó mörg mistök hefðu verið gerð í íslensku efnahagslífi á umliðnum átum þá væru það mistök að nýta ekki þær auðlindir sem Íslendingar hafa yfir að ráða. Það myndi stuðla að aukinni atvinnu og þar með draga úr atvinnuleysi hér á landi.

Ísland er ríkt af náttúrulegum auðæfum, fiski og endurnýjanlegri orku. Ekki sé hins vegar ljóst að afraksturinn renni til almennings. Sagði hann að ef þetta ætti við um Bandarkin myndi hann hiklaust segja að það væri út í hött að ágóðinn renni ekki beint til almennings. Hans skoðun sé því sú að almenningur á Íslandi þurfi að endurheimta ágóðan af náttúruauðlindum landsins. Það góða sé að mistök í þessum efnum sé hægt að leiðrétta. Það sé mikilvægt, því líklegt sé að náttúruauðævi Íslandinga verði enn verðmeiri er fram líða stundir./Auðvitað eru skoðanir manna og Hagfræðinga misjafnar en ,þessu manni eigum við að leggja hlustir við,þetta sem hann segir er þarna allavega hár rétt ,að mati okkar flestra/Halli  gamli


mbl.is Mistök að nýta ekki auðlindirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband