Kanna möguleika á hvalaskoðun við Vestfirði/Fer vel saman við veiðar!!!!

Innlent | Bæjarins besta | 9.9.2009 | 11:43
Þær tegundir hvala sem algengastar eru við Vestfirði eru...Í skýrslu, sem unnin er af Alþjóðadýraverndunarsjóðum í samstarfi við heimamenn á Vesfjörðum, er mælt með því að tilraun verði gerð með litla hvalaskoðunarútgerð frá Bolungarvík jafnhliða því að ítarlegri könnun verði framkvæmd í samstarfi við sjómenn. Síðar meir kunni að my

Skýrslan, sem er um hagkvæmni þess að koma á fót skipulagðri hvalaskoðun á Vestfjörðum, verður kynnt í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði á morgun.

Á vef Bæjarins besta á Ísafirði segir að skýrslan sé unnin af Alþjóðadýraverndunarsjóðnum í samstarfi við heimamenn. Tekin voru 105 viðtöl, aðallega við sjófarendur í Bolungarvík og á Ísafirði. Einnig var rætt við einstaklinga í Djúpinu og í Súðavík. Niðurstöðurnar leiða í ljós að í u.þ.b. þriðjungi sjóferða sést til hvals og að líklegast er að finna hval við mynni Ísafjarðardjúps.

Þær tegundir hvala sem algengastar eru við Vestfirði eru hrefnur, hnúfubakar, hnýsur og háhyrningar auk höfrunga. Mælt er með því að tilraun verði gerð með litla hvalaskoðunarútgerð frá Bolungarvík jafnhliða því að ítarlegri könnun verði framkvæmd í samstarfi við sjómenn. Síðar meir kunni að myndast möguleikar á hvalaskoðun frá Ísafirði.

Einnig er lagt til að í september verði ferðir háhyrninga kannaðar nánar, en þá gæti hvalaskoðun laðað ferðamenn að svæðinu utan háannatíma. Ljóst þykir að grundvöllur sé fyrir skipulagða hvalaskoðun við Steingrímsfjörð enda hafa hvalaskoðunarferðir verið farnar frá Drangsnesi.

Skýrslan verður sem fyrr segir kynnt í Háskólasetrinu á Ísafirði kl. 15 á morgun, fimmtudag og er stefnt að því að afhenda Halldóri Halldórssyni bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar skýrsluna við það tækifæri.
myndasendast möguleikar á hvalaskoðun frá Ísafirði///Þetta er ekki dyravernd að mínu mati !!! þetta er byssness og ekkert annað nóg er gott að hafa með veiðunum að skoða hvali ,ekkert við það að athuga,en maður segir samt eins og fleiri,við verðum að veiða þetta sjálfbært ekkert annað,skoða þá einnig/Halli gamli


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 1045788

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband