Kaupmáttur lækkar enn/og skattar og gjöld öll munu hækka!!!!!

Kaupmáttur lækkar enn
Viðskipti | mbl.is | 23.9.2009 | 9:00
 Launavísitala, sem Hagstofan reiknar út, hækkaði um 0,02% í ágúst miðað við júlí. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 2,2% en á sama tímabili hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,9%

Vísitala kaupmáttar launa í ágúst lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 7,8%, að sögn Hagstofunnar.

Skrifað var í júlí undir breytingar og framlenging kjarasamninga flestra aðildarfélaga BSRB og ríkis og sveitarfélaga. Samkvæmt samningunum er gert ráð fyrir hækkun launataxta í þremur áföngum, þann 1. júlí 2009, 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Samkvæmt samningunum hækkuðu launataxtar undir 180 þúsund krónum um 6.750 krónur þann 1. júlí sl. Í júlímánuði voru jafnframt sambærilegir samningar gerðir á milli ríkis og sveitarfélaga og stéttarfélaga starfsmanna á almennum vinnumarkaði.

Samkvæmt ákvörðun Kjararáðs frá 17. júlí 2009 lækkuðu laun skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands um 5-8% frá 1. ágúst 2009. ////Hvað er hægt að gera ,þetta er víða svo erfitt að  menn eru að kikna utan þessu,Skattahækkanir boðaðar og vöruverð hækkar bókstaflega allt sem nöfnum tjáir  að nefna gerir það,bara eitt lækkar það kaupmátturinn og flýr besta fólkið erlendis sem hefur misst atvinnuna,hvað er til ráða gott fólk!!!   Leysist þetta nokkuð,förum við ekki bara öll á Hausinn/Halli gamli


mbl.is Kaupmáttur lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband