Aukið langtímaatvinnuleysi/með þessum aðgerðum stefnir beint i það !!!!!

Aukið langtímaatvinnuleysi
Innlent | Morgunblaðið | 3.10.2009 | 10:00

Samdráttur hefur leitt til aukins atvinnuleysis byggingamanna.Þeim fjölgar hratt sem hafa verið lengi á atvinnuleyisskrá, þ.e. meira en sex mánuði. Vinnumálastofnun spáir því að þessi tala verði komin í 10 þúsund í janúar á næsta ári.

Þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins fram til ársins 2011, sem birt var í fyrradag, dregur upp dökka mynd af stöðu atvinnulífsins í landinu. Er því spáð að atvinnuleysi verði að meðaltali í 10,6% á næsta ári en lækki í 9% árið 2011. Er þetta nokkru svartsýnni spá en áður. ASÍ gaf út spá í sumar og taldi að atvinnuleysi gæti farið í 10% á næsta ári.

Karl Sigurðsson, forstöðumaður vinnumálasviðs Vinnumálastofnunar, segir að ef spá fjármálaráðuneytisins gangi eftir megi búast við því að atvinnuleysið fari jafnvel yfir 12% þegar verst lætur í vetur. Þegar atvinnuleysið var mest síðasta vetur, í lok mars, voru 16.822 á atvinnuleyisskrá. Þá mældist atvinnuleysið 9,1%. Því gæti tala atvinnulausra farið yfir 20 þúsund næsta vetur, þegar atvinnuleysið verður mest. Að meðaltali gætu um 17.500 manns verið án atvinnu á næsta ári.

Brýtur einstaklinga niður

 

Ástandið lagaðist síðasta sumar en undanfarnar vikur hefur fólki verið að fjölga á skránni að nýju

Það veldur áhyggjum hve hratt hefur fjölgað í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengi. Þannig höfðu 7.457, sem voru án atvinnu í ágústlok, verið atvinnulausir í meira en hálft ár, eða rúmlega helmingur allra á skránni. Þar af höfðu 799 verið án atvinnu í eitt ár eða lengur.

„Langtímaatvinnuleysi brýtur niður einstaklinginn og þeim mun lengur sem fólk er án atvinnu þeim mun erfiðara getur því reynst að vera virkt í atvinnuleitinni og að snúa aftur til starfa. Af þeim sökum eru virkar vinnumarkaðsaðgerðir til þess að styðja við og efla fólk aldrei mikilvægari en í langtímaatvinnuleysi,“ segir í hagspá ASÍ.

Að sögn Karls fjölgar mjög hratt í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengi, þ.e. meira en sex mánuði. Samkvæmt spám Vinnumálastofnunar er gert ráð fyrir að um 9,500 manns verði í þessum hópi í desember og talan verði komin í 10 þúsund í janúar. Síðan verður fjölgun lítil fram á sumarið en þá gæti talan hækkað ef ekki fer að rofa til.

Karl segir að Vinnumálastofnun horfi fyrst og fremst til þessa hóps þegar verið að vinna að úrræðum og vinnumarkaðsaðgerðum. Reynt er kalla þetta fólk í viðtöl eins og hægt er. Hins vegar hafi stofnunin ekki nægilegan mannafla til að sinna þessum hópi eins og æskilegt væri.

Ef ekki tekst að útvega fólkinu vinnu er margra úrræða leitað. Meðal annars er reynt að semja við fyrirtæki. Þau ráða þá fólkið til reynslu og fá greidda upphæð sem samsvarar atvinnuleyisbótum.

Einnig er reynt að koma á fót átaksverkefnum í samráði við sveitarfélög og félagsamtök. Boðið er upp á ýmis námskeið til að viðhalda virkni fólksins, t.d. á vegum Rauða krossins og stéttarfélaganna. Miðstöðvar, sem settar hafa verið upp fyrir atvinnulausa, hafa einnig gefið góða raun. Verið er að kanna hvort hægt er að hrinda af stað fleiri slíkumverkefnum.

„Margir eru þreyttir eftir síðasta vetur og eiga erfitt með að horfa fram á annan slíkan,“ segir Karl.
///Alvara malsins er mikil,við höfum sem betur fer ekki kynnst þessu áður svona slæmu,en nú munum við á næstu árum kynnast því sem hefur verið viðvarandi í mörgum löndum i árana rás, kynsloð fram af kynslóð,þetta er einn  versti þáttur i einu þjóðfélagi atvinnuleysi,og það komið til að vera 10-15% næstu árin að þessari frá sögn lesinni,eins og málin standa nú er þetta að gerast mjög hratt,og engin vill sem stjórnar hafa það öðruvísi,það er næsta vist/ekkert annað en að koma öllu af stað getur bjargað þessu og það er nú stjórn/Halli gamli


mbl.is Aukið langtímaatvinnuleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband