Hlýtt sumar liðið /Fyrsti vetrardagur ekki fyrr en 24 Oktober !!!!!

Hlýtt sumar liðið
Innlent | mbl.is | 3.10.2009 | 12:58

 Sumarið er liðið hjá Veðurstofunni þótt fyrsti vetrardagur sé ekki genginn í garð. Hún miðar sumarið við mánuðina júní til september. Sumarið var hlýtt, í Reykjavík er það hið 10. til 11. hlýjasta frá upphafi samfelldra mælinga 1871 og það fjórða hlýjasta frá nýliðnum aldamótum

Meðalhiti sumarsins í Reykjavík var 10,7 stig og er það 1,4 stig yfir meðallagi. Ekki varð alveg jafnhlýtt að tiltölu á Akureyri, meðalhiti sumarsins þar var 9,8 stig, 0,8 stigum yfir meðallagi.

Úrkoman í Reykjavík mældist 171 mm og er það um fjórðungi undir meðallagi. Þetta er þurrasta sumar frá 1988 að telja, ámóta þurrt var þó sumarið 1994. Á Akureyri mældist úrkoman 130 mm og er það í meðallagi.

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 709 og er það 106 stundum umfram meðallag. Sólskinsstundir hafa alloft mælst fleiri en nú í júní til september, m.a. bæði í fyrra og hittiðfyrra. Á Akureyri mældust sólskinsstundir sumarsins 599 en það er 43 stundum umfram meðallag og munar mest um sólríkan júlí. Mikið sólarleysi var hins vegar á Akureyri í ágúst///Það virðist ætla að vetra snemma núna og þegar komið mjög svo vetralegt veðurfar,eftir gott sumar mjög!!!þetta kemur okkur oft á óvart sétaklega  með bilana, að skipta um dekk er ekki gert fyrr en vetur kemur,en hann er komin!!!bara vona  þetta verði ekkii harður vetur,það er margir að tala svo/Halli gamli


mbl.is Hlýtt sumar liðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband