Varar við hugsanlegu hruni í Lettlandi/og við erum einnig með AGS á okkur!!!!

Varar við hugsanlegu hruni í Lettlandi
Viðskipti | mbl.is | 3.10.2009 | 9:53

 Anders Borg.Sænskir fjölmiðlar fullyrða í dag að Anders Borg, fjármálaráðherra, hafi átt leynileg samtöl við stjórnendur stærstu sænskun bankanna og varað þá við því að efnahagshrun kunni að vera yfirvofandi í Lettlandi, m.a. vegna þess að stjórnmálamenn þar í landi komi sér ekki saman um aðgerðir vegna kreppunnar.
fundi fjármálaráðherra Evrópusambandsins í gær, sem Borg stýrði, sagði hann að stjórnvöld í Lettlandi yrðu að standa við gefin heit um niðurskurð ríkisfjármála þegar fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár verður lagt fram í lok október.

Vefurinn e24.se segir að Borg hafi á fundinum sagt að þolinmæði alþjóðasamfélagsins sé afar takmörkuð en fréttir hafa borist frá Lettlandi um að afar erfiðlega gangi að ná samkomulagi um niðurstöður fjárlagafrumvarpsins í Lettlandi.

Vefurinn hefur eftir heimildarmönnum, að Borg hafi á undanförnum vikum átt fundi með sænskum bankastjórum og varað við því að allt gæti farið upp í loft í Lettlandi. Í versta falli gæti það leitt til gengishruns lettneska gjaldmiðilsins og greiðslufalls. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur m.a. lagt mikla áherslu á að Lettar felli gengi gjaldmiðilsins.

Sænskir bankar hafa átt í miklum viðskiptum við Lettland. Þannig hefur Swedbank lánað einstaklingum og fyrirtækjum þar um 61 milljarð sænskra króna, jafnvirði um 1200 milljarða íslenskra króna. Sambærileg tala hjá  SEB er 40 milljarðar sænskra króna og 30 milljarðar hjá Noreda.  

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Evrópusambandið og Norðurlönd hafa tekið ákvörðun um að lála Lettlandi samtals jafnvirði um 1400 milljarða íslenskra króna. Skilyrði er hins vegar, að lettnesk stjórnvöld grípi til verulegs niðurskurðar og aðhaldsaðgerða. Meðal annars er krafa um að laun opinberra starfsmanna verði lækkuð um 15% og skattar verði hækkaðir. ///Þekkjum við þessar aðferðir AGS lána og taka menn  og þjóðfélög svo i nefið,ef þeir hliða ekki öllu þeirra kreddum,við verðum að lostna undan þessum s AGS sjóði annað ekki hægt,annars förum við svona einnig/Halli gamli


mbl.is Varar við hugsanlegu hruni í Lettlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband