Meira veitt og aukin verðmæti/aukum kvótan !!!!!!

Meira veitt og aukin verðmæti
Innlent | mbl.is | 14.10.2009 | 9:06

Mynd 179853 Heildarafli íslenskra skipa í september, metinn á föstu verði, var 18,5% meiri en í september 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 6,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn í september 2009 var 77.392 tonn samanborið við 68.052 tonn í sama mánuði árið áður.
að því er fram kemur í frétt Hagstofu Íslands.

Meira veitt af þorski í ár

Botnfiskafli jókst um rúm 4.000 tonn frá september 2008 og nam tæpum 36.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 14.000 tonn, sem er um 4.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam rúmum 6.000 tonnum sem er um 1.600 tonnum minni afli en í september 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára og nam tæpum 5.000 tonnum en rúm 5.000 tonn veiddust af karfa, sem er um 700 tonnum meiri afli en í september 2008.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 38.000 tonnum sem er um 5.000 tonna aukning frá því í september 2008. Síldaraflinn nam rúmum 32.000 tonnum og jókst um 5.500 tonn. Um 4.000 tonn veiddust af makríl, sem er tæpum 2.000 tonnum minni afli en í september 2008.

Flatfiskaflinn var 2.665 tonn í september og jókst um 747 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 907 tonnum samanborið við um 1.500 tonna afla í september 2008.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.///þetta góðar fréttir,ekki veitir af í öllum þessu bölmoði!!! en við gætum aukið kvóta tímabundið og svo aukið vinnslu afurða hérlendis,ekki senda að óunnið út að mesti eins og gert er i dag,það er svo margt sem hægt er að  bæta i allri okkar fiskveiði og vinnslu og sölu/þetta er fundið fá fyrir okkur og hefur verið talað um í mörg ár án mikils árangurs/Halli gamli


mbl.is Meira veitt og aukin verðmæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband