Fyrst á klósettið - síðan um borð/hvað svo ekki borða og drekka?????

Fyrst á klósettið - síðan um borð
Veröld/Fólk | AFP | 14.10.2009 | 10:28

Flugvél All Nippon Japanskt flugfélag hefur tekið markmið sitt um að draga úr þyngd flugvéla í flugi upp í nýjar hæðir með því að biðja flugfarþega á einhverjum áætlunarleiðum sínum um að fara á salernið áður en farið er um borð

Þessi óvanalega beiðni er ein af þeim leiðum sem All Nippon flugfélagið hefur gripið til í þeim tilgangi að draga úr eldsneytiskostnaði.

Áætlar flugfélagið að ef um helmingur flugfarþega fer á klósettið fyrir flug þá sé hægt að draga úr koltvísýringslosun um 4,2 tonn á mánuði, að sögn talsmanns All Nippon, Megumi Tezuka.

All Nippon ætlar einnig að endurnýta pappamál og plastflöskur og nota  matarprjóna unna úr viði frá skógum sem verið er að grisja. Með þessu vonast félagið til þess að leggja náttúrunni enn frekar lið en áður.

Flugfélagið hefur gripið til ýmissa ráða til þess að draga úr þyngd flugvéla, svo sem með því að draga úr þykkt tímarita sem eru í boði, léttari gaffla og skeiðar sem og léttari vagna undir söluvarning um borð.

All Nippon var rekið með tapi á síðasta rekstrarári og er það í fyrsta skipti sem slíkt gerist í sex ár. Félagið er ekki það eina sem lítur til salerna hvað varðar sparnað. Má þar nefna hugmyndir Ryanair um að krefja farþega um greiðslu fari þeir á klósettið um borð í flugvélum félagsins.///Grínlaust er þetta kannski það sem kannski gæti lækkað fargjöldin,að losa og borða og dreka sem mynnst/eins hefur komið til hjá sumum flugfélögum að borga flugfar eftir þyngd sum hafa vist tekið það fyrir! auðvitað er þetta peningur en svona aðferðir eru enþá ekki komið á koppinn her á Íslandi allavega/Halli gamli


mbl.is Fyrst á klósettið - síðan um borð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045655

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband