15.10.2009 | 10:09
Segir yfirtökuna betri kost/sem kúnni þarna til margra ára vill maður vera viss!!!!
Viðskipti | mbl.is | 15.10.2009 | 9:46
Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að það hafi verið samdóma álit skilanefndarinnar og ráðgjafa hennar að yfirtaka á 95% hlut í Íslandsbanka sé betri kostur heldur en að kröfuhafar fái greiðslu í formi skuldabréfa útgefnum af Íslandsbanka og eignast kauprétt á allt að 90% af hlutafé bankans á næstu fimm árum.
kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka en nú stendur yfir blaðamannafundur þar sem yfirtaka kröfuhafa á 95% hlut í Íslandsbanka er kynnt.
Skilanefnd Glitnis hefur, fyrir hönd kröfuhafa, ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi við íslenska ríkið og eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka. Þessa ákvörðun tók skilanefnd Glitnis eftir ítarlega áreiðanleikakönnun sem framkvæmd hefur verið af hálfu ráðgjafa Glitnis á rekstri Íslandsbanka.
Með þessu lýkur uppgjöri vegna þeirra eigna sem færðar voru frá Glitni til Íslandsbanka við fall bankanna í október á síðasta ári. Samkvæmt samningum skilanefndar Glitnis og íslenska ríkisins sem undirritaðir voru þann 13. september síðastliðinn mun ríkið jafnframt veita bankanum 25 milljarða króna víkjandi lán til að styrkja eiginfjár- og lausafjárstöðu bankans, að því er segir í fréttatilkynningu.
Þetta þýðir að kostnaður ríkisins vegna fjármögnunar bankans verður tæpum 37 milljörðum króna minni en ella.
Ákvörðun skilanefndarinnar er tekin með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Skilanefnd Glitnis mun fara með eignarhald bankans fyrir hönd kröfuhafa í gegnum sérstakt eignarhaldsfélag. Glitnir mun skipa 4 stjórnarmenn af 5 í stjórn bankans en íslenska ríkið mun skipa einn stjórnarmann.
Samkvæmt samningum skilanefndar Glitnis og stjórnvalda frá 13. september síðastliðnum gátu kröfuhafar í Glitni valið milli tveggja kosta. Annars vegar að eignast 95% hlut í Íslandsbanka og hins vegar að fá greiðslu í formi skuldabréfa útgefnum af Íslandsbanka og eignast kauprétt á allt að 90% af hlutafé bankans á næstu fimm árum.
Það er niðurstaða skilanefndar Glitnis eftir ítarlega skoðun að yfirtaka á 95% hlut í Íslandsbanka muni skila mestum verðmætum til kröfuhafa. Þetta mat er meðal annars byggt á áliti þeirra ráðgjafa sem Glitnir hefur unnið með, en meðal þeirra má nefna sérfræðinga frá fjárfestingabankanum UBS og lögfræðifyrirtækinu Morrison & Foerster.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir í fréttatilkynningu: Það er fagnaðarefni að Glitnir, í samráði við kröfuhafa, taki nú ákvörðun að eignast íslenskan banka. Þessi ákvörðun er skýrt merki um að erlendir fjárfestar sjá nú fyrir endann á þeirri alþjóðlegu fjármálakreppu sem við höfum glímt við undanfarið ár. Nú er verið að leggja lokahönd á endurreisn íslenska bankakerfins sem er að verða fullbúið til að þjónusta heimilin og styðja við uppbyggingu atvinnulífsins.
<!--[if !supportLineBreakNewLine]-->
<!--[endif]-->Mikilvægt er að fjárútlát ríkissjóðs verða miklum mun minni en annars hefði verið, þó ég sé þeirrar skoðunar að eignarhald ríkisins á Íslandsbanka hefði verið ágætur kostur fyrir ríkissjóð og almenning. Ríkissjóður mun leggja bankanum til eigið fé og ennfremur lausafjárstuðning, ef á þarf að halda. Bankinn stendur því uppi með afar trausta fjárhagsstöðu og á að geta þjónað viðskiptavinum sínum, almenningi jafnt sem fyrirtækjum, af kostgæfni.///sem kunni þarna mörg árin fyrst útvegsbanka svo Islandsbanka og svo Glitni siðar 'Íslandsbanka hefur maður áhuga þessu !!!maður er orðin hálf hvekktur á þessum bönkum yfirleit og umatið um þá,en vonum að þetta verði okkur kunnum um bankanum til heilla, ef ekki er þetta ekki gott en skoðum málin betur/Halli gamli
Segir yfirtökuna betri kost | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.