Aðstoð við heimilin forsenda sátta/mikið sammála þessu!!!!!

Aðstoð við heimilin forsenda sátta
Innlent | Morgunblaðið | 15.10.2009 | 5:30

Bjarni Benediktsson á Alþingi.„Við þurfum að létta byrðum af fyrirtækjunum og laða erlent fjármagn hingað heim. Ef slíkt gerist, geta fyrirtækin aftur farið að ráða til sín fólk og þannig má eyða atvinnuleysi. Við sjálfstæðismenn höfum bent á, að 5.000 ný störf sem skapa mætti strax á næsta ári myndu bæta afkomu ríkissjóðs,“ segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við MorguMorgunblaðið.

Lífeyrissköttum verði breytt

Sjálfstæðisflokkurinn lagði í gær fram þingsályktunartillögu á Alþingi um bráðaaðgerðir í efnahagsmálum. Lagt er til að ríkið spari um 5% í velferðar- og menntamálum og um 10% á öðrum sviðum. Þetta telja Sjálfstæðismenn að geti sparað 35 til 40 milljarða á ári, viðlíka og kerfisbreyting á skattlagningu lífeyrisgreiðslna. Þá er lagt til að umhverfi atvinnurekstrar verði bætt og hindrunum fyrir erlenda fjárfestingu rutt úr vegi sem geti skapað 5.000 ný störf árleganblaðiðað ríkið gefi út skuldabréf til lengri tíma sem séu aðlaðandi fyrir erlenda fjárfesta. „Erlend fjárfesting styrkir gjaldmiðilinn og styrkir krónuna,“ segir í tillögunum. Er undirstrikað að sterkari króna lækki upphæðina sem íslenska ríkið þarf að borga í krónum en þær fái ríkið á móti skuldabréfunum og geti notað til að fjármagna framkvæmdir og halla ríkissjóðs.

Lánalínur opnaðar

Þetta dragi sömuleiðis úr þörf fyrir gjaldeyrisvarasjóð og lán frá AGS. Sennilega dugi lán frá Norðurlöndum og Póllandi. Ef hægt sé að setja aðstoð norrænu þjóðanna í þann farveg að aðeins sé opnað á lánalínur megi spara 1,6 milljarða kr. á ári.

 

Bjarni Benediktsson segir aðspurður að vissulega sé ekki mikill munur á lánum eða skuldabréfaútgáfu. Með síðarnefndu leiðinni sé hins vegar gerlegt að dreifa byrði á lengi tíma, skapa trúverðuga áætlun og ryðja úr vegi hindrunum.

„Forsendan fyrir breiðri sátt í samfélaginu er að treysta að nýju stöðu heimilanna,“ segja sjálfstæðismenn. Þeir vilja að taka á skuldavanda heimilanna með þeim útgangspunkti að fjölskyldur búi í eigin húsnæði og aðgerðir tryggir hag bæði lántakenda og -veitenda.

Gripið verði til almennra aðgerða, stimpilgjöld afnumin og tekið verði á vanda verst stöddu heimilanna og þeim sem orðið hafa gjaldþrota verði gert auðveldara að komast á fæturna að nýju.

Í atvinnumálum er undirstrikað að ekki megi ganga svo í umhverfisverndar, orkunýtingu eða útgerð, að skynsamleg atvinnutækifæri séu slegin út af borðinu. Þá er segir að umræða um fyrningarleið hafi valdið óvissu og ólympískar strandveiðar séu óhagkvæmar. „Það er hættulegt að hækka skatta á sama tíma og við erum í niðurskurði. Því bendum við á aðrar leiðir til að loka fjárlagagatinu,“ segir Bjarni Behnotskurn» Hindrunum fyrir erlenda fjárfestingu rutt úr vegi sem skapað geti 5.000 ný störf.
» Lagt er til að ríkið spari um 5% í velferðar- og menntamálum og um 10% á öðrum sviðum.
» 20 þúsund ný störf munu bæta afkomu ríkissjóðs um 60 milljaðra króna á ári.
» Atvinnutækifærum ekki fórnað í umhverfisskyni.
» Með lánalínu en ekki lánum norrænu þjóðanna, má spara 1,6 milljarða kr. á árinediktsson///þetta er gott að kom með grundvöll af samkomulegi og það er þá ekki sagt að sjálfstæðismenn sé ekki með það á hreinu að bjarga þessu landi á kollstökks/þetta er mjög svo gott til að vinna úr og ber að taka alvarlega mjög, vona að menn ræði þetta með skinsemi en ekki fyrirfram leiðindum /Halli gamli


mbl.is Aðstoð við heimilin forsenda sátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045764

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband