Endurskoðun óháð þinginu/kvað er að gerast hjá þessu fólki ?????

Endurskoðun óháð þinginu
Innlent | mbl | 18.10.2009 | 19:23
Frá blaðamannafundi í Alþingishúsinu í dag. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að ekki þurfi að bíða eftir afgreiðslu Alþingis á nýju frumvarpi vegna Icesave-málsins, áður en endurskoðun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins fari fram. Steingrímur J. Sigfússon fjármálblaðamannafundi fyrr í dag sögðu Jóhanna og Steingrímur að þau hefðu fulla trú á að málið hlyti samþykki í meðförum Alþingis. Jóhanna sagði að hún teldi ríkisstjórnina hafa full tök á málinu í sínum þingflokkum. „Það hefur verið samþykkt framlagning á því þannig að ég óttast ekki um afdrif þess á þinginu," sagði hún og að mikilvægt væri að ná málinu fram sem fyrst. „Þó er það mjög mikilvægt að við teljum að það liggi fyrir að við fáum þessa endurskoðun hjá AGS, það þurfi ekki að bíða eftir því að þetta frumvarp verði að lögum."

Steingrímur sagðist bjartsýnn á farsælar lyktir málsins í sínum þingflokki. „Það var fallist á framlagningu þess sem stjórnarfrumvarps án athugasemda í þingflokknum," sagði hann og að hann hefði ekki áhyggjur af afstöðu tiltekinna þingmanna.

Hvað varðar afstöðu stjórnarandstöðunnar sagði Steingrímur að fundur fjárlaganefndar hafi verið góður og gagnlegur. „Hvort sem menn samþykkja málið eða ekki, þá held ég að því verði ekki á móti mælt að það hefur náðst mikilsverður árangur í því að fá gagnaðilana til að fallast á umbúnaðinn af hálfu Alþingis frá síðastliðnu sumri. Það hlýtur að vera jákvætt gagnvart þeim sem að því stóðu og auka líkurnar á því að menn séu sáttari við málið en ella."

Hann sagði í höndum þingsins hversu hraða afgreiðslu málið fær í meðförum þess. „En auðvitað er málið svo þaulrætt og rannsakað að það á auðvitað að flýta fyrir. Þetta eru tiltölulega einfaldar breytingar sem nú eru gerðar og öll gögn málsins munu liggja fyrir." Inntur eftir því hvort hann ætti von á annarri eins Icesave-umræðu núna og var í sumar sagði hann Alþingi Íslendinga hafa ýmislegt að sýsla þessa dagana. „Þannig að ég held að það séu nú ekki góðar aðstæður til þess að láta þetta mál eitt og sér taka allan tímann og ryðja öllu öðru til hliðar. Það þarf nú helst að afgreiða hér fjárlög og gera ýmsar breytingar á skattalögum og annað í þeim dúr. Árið 2010 nálgast óðfluga og allt þetta þurfum við að hafa í huga þegar menn meta stöðuna."////Já það þarf bara ekkert að ræða þetta !!!!! ,þetta bara liggur fyrir og mark rætt og engvar  refjar með það,þetta skal bar á kvaðst og ekkert beðið með það Alþingi getur enginn breitt þarna ,þetta mun frágengið alveg  !!!!!!//Halli gamli 


mbl.is Endurskoðun óháð þinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Taktu niður Svörtu Valhallar gleraugun Haraldur og lestu textann aftur. Það er AGS sem ætlar að endurskoða sína ákvörðun hvað sem líður afgreiðslu Alþingis á þessu nýja samkonulagi.

Það þarf stundum að lesa aðeins meira en matreiddar fyrirsagnirnar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.10.2009 kl. 01:22

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

 þetta er mikil misskilningur Axel að Halli gamli sjái bara með Valhallargleraugum,samfæring mín er ekki endilega þeirra allas  ekki eg hefi nú lifað timana tvenna og er bara sjalfstæður maður læt engan stíra mer i mínum skoðunum/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 19.10.2009 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband