19.10.2009 | 10:55
Kjaradeila lögreglumanna og ríkis í járnum/það verður að semja við þá um góð laun!!!!
Innlent | Morgunblaðið | 19.10.2009 | 10:30
Hvorki gengur né rekur í kjaradeilu lögreglumanna og ríkisins. Sáttafundur sem haldinn var á dögunum var árangurslaus. Beðið er niðurstöðu vinnuhóps um framtíðarskipulag lögreglunnar
Lögreglumenn kolfelldu kjarasamning við ríkið um miðjan ágúst, þar sem yfir 90% sögðu nei í atkvæðagreiðslu. Í framhaldi af því komust samningnaefndinar að þeirri niðurstöðu að réttast væri að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara.
Sá mikli samdráttur sem löggæslan hefur mátt sæta og fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á löggæslunni í landinu eru mál málanna. Ekki er búist við að neitt samkomulag náist í kjaradeilunni fyrr en sér fyrir endann á þeirri vinnu, en það ætti þó að geta orðið fljótlega, skv. upplýsingum blaðsins.
Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindamálaráðherra skipaði vinnuhópinn og var ráðgert að hann skoðaði fýsileika þess að allt lögreglulið verði undir einni yfirstjórn. Gert er ráð fyrir að fyrir aðra umræðu fjárlaga muni ráðherra leggja fram tillögur um breytingar sem verða gerðar í áföngum
Á borðinu að lögreglustjórar verði 6 auk ríkislögreglustjóra
Snorri bendir á að horfið hafi verið frá hugmyndinni um einn lögreglustjóra yfir landið allt og ákveðið að fara þá leið sem Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, var lagður af stað með, að lögreglustjórar verði sex og til viðbótar þeim eru svo ríkislögreglustjóri og skólastjóri Lögreglustjóra ríkisins. Þetta eru þær hugmyndir sem eru á borðinu, segir Snorri.
Í fjáraukalagafrumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi á dögunum er lagt til að lögregluembætti landsins þurfi að skera niður 139,5 milljónir kr. á þessu ári til viðbótar þeim niðurskurði sem ákveðinn var á fyrri hluta ársins. Landssamband lögreglumanna hefur tekið saman hvernig viðbótarniðurskurðurinn blasir við einstökum embættum. Hafa ber þó í huga að frumvarpið gæti átt eftir að taka meðförum á Alþingi og útfærsla sparnaðarins geti orðið með misjöfnum hætti á milli embætta.
57 millj. viðbótarniðurskurður á höfuðborgarsvæðinu
Hæsta fjárhæðin sem skorin er niður er hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eða samtals 57,1 milljón. Ríkislögreglustjóri þarf að spara 23,6 millj. kr. Sýslumaðurinn á Akureyri 9 milljónir, Sýslumaðurinn á Ísafirði 5,9 millj. kr. og önnur embætti minna.
Það er alls ekki auðvelt fyrir þessi minni lið út á landi að ná þessum markmiðum. Þau eru missett fjárhagslega eins og gefur að skilja og mismikið störfum hlaðin. Niðurskurðurinn kemur misjafnlega við þau en kannski einna verst hér á höfuðborgarsvæðinu, segir Snorri.///þar ber mönnum ekki saman .að ber að launa þessa menn vel ,en það ber einnig að spara það sem hægt er að hagræða,minka yfirbygginguna og leggja niður þennan Rikislögreglustjóra og hans embætti og svo virkja alla sem hægt er sérsveitina einnig á vaktir eins og aðara/en í öllum bænum að gera laun þeirra sem besta svo við faúm þarna besta fólkið/Halli gamli
Kjaradeila lögreglumanna og ríkis í járnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.