Lög um Stjórnarráðið endurskoðuð/sennilega þörf i kreppunni!!!!!

Lög um Stjórnarráðið endurskoðuð
Innlent | mbl.is | 23.10.2009 | 14:52

Stjórnarráðshúsið við LækjartorgRíkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun skipa nefnd til að endurskoða í heild sinni lög um Stjórnarráð Íslands og gera tillögur um lagabreytingar. Meðal þess sem verður skoðað er ráðning pólitískra aðsGert er ráð fyrir að m.a. verði litið til lagareglna sem um þetta gilda á Norðurlöndunum og víðar eftir atvikum. Nefndin verður skipuð fulltrúa forsætisráðherra sem jafnframt verður formaður, fulltrúa tilnefndum af fjármálaráðherra og utanaðkomandi sérfræðingum á sviði opinberrar stjórnsýslu og vinnuréttar. Samráð verður haft við samtök opinberra starfsmanna um endurskoðunina.

Núgildandi lög um Stjórnarráð Íslands eru að stofni til frá árinu 1969. Þótt lögin hafi tekið nokkrum breytingum frá þeim tíma er það mat forsætisráðuneytisins, með hliðsjón af fenginni reynslu af framkvæmd laganna, að rétt sé og tímabært að ráðast í heildarendurskoðun þeirra, samkvæmt tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Auglýsingaskylda skoðuð

Meðal þeirra atriða sem varða starfsemi Stjórnarráðsins og þarfnast sérstakrar skoðunar má nefna ákvæði um:
Starfshætti ríkisstjórnar og fyrirkomulag ríkisstjórnarfunda og annarra ráðherrafunda, m.a. hvaða mál skuli leggja fyrir ríkisstjórnarfundi og í hvaða formi það skuli gert.
Innra skipulag ráðuneyta innan Stjórnarráðsins og starfsheiti starfsmanna. Pólitíska aðstoðarmenn ráðherra, m.a. um stöðu pólitískra aðstoðarmanna innan ráðuneytis, ráðningu þeirra, starfslok og fjölda þeirra.
Auglýsingaskyldu starfa hjá hinu opinbera og frávik frá þeirri skyldu, m.a. vegna tímabundinna aðstæðna.
Heimildir til tilflutnings embættismanna og annarra starfsmanna innan Stjórnarráðsins, m.a. um málsmeðferð og formkröfur laganna og mögulega flutningsskyldu.toðarmanna ráðherra, starfslok þeirra og fjölda///þetta  mun vera tímabært að gera,og það vel margt er þarna sem má breyta og vonar maður að það verði gert,en með skipun nefndarinar verður að velja vel ekki þessi pólitík eingöngu,ekki vinarvæðingu ,er ekki verið einmitt að vinna gegn henni??? þess VEGGNA VARA AÐ VERA ÞARNA EINNIG ÓPóLTIKSIR MENN/e ekki bara menn úr forssætisráðuneiti  og Fjármala /eitthvað mjög svo víðaðra svið þarna/Halli gamli


mbl.is Lög um Stjórnarráðið endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045662

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband