AGS krefst þess að stjórnvöld í Úkraínu beiti neitunarvaldi/Burt með þá frá Íslandi!!!!

AGS krefst þess að stjórnvöld í Úkraínu beiti neitunarvaldi
Viðskipti | AFP | 25.10.2009 | 14:08

Mynd 495748Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn krefst þess að ríkisstjórn Úkraínu beiti neitunarvaldi og komi í veg fyrir að frumvarp til laga um launa- og lífeyrismál nái fram að ganga á þingi eftir helgi. Segir AGS að frumvarpið samræmist ekki áætlun AGS í Úkraínu.
yfirlýsingu AGS í dag kemur fram að efnahagsástandið og fjármál Úkraínu sé að ná jafnvægi með stuðningi AGS en grípa þurfi til aðgerða á sumum sviðum.

Sendinefnd á vegum AGS var nýverið í Kiev og átti þar viðræður við starfsmenn fjármálaráðuneytisins og seðlabankans. Var gengið frá samkomulagi um þær aðgerðir sem nauðsynlegt þykir að grípa til svo stöðugleika verði náð á ný í Úkraínu.

Er þess nú beðið að forseti Úkraínu, forsætisráðherra, fjármálaráðherra  og seðlabankastjóri, undirriti samkomulagið og um leið að lögin sem samþykkt voru í liðinni viku á þinginu, Rada, verði ekki samþykkt heldur muni stjórnvöld beita neitunarvaldi.

Úkraína, sem varð afar illa út úr fjármálakreppunni, horfir fram á 15 samdrátt í efnahagslífinu í ár. Hins vegar spáir Alþjóðabankinn því að hagvöxtur nemi 2,5% á næsta ári í Úkraínu.//þetta ætti að' kenna okkur að við eigum ekki að hafa meir samskipti við þennan sjóð AGS við eigum að hætta við að fá þarna lán og ekkert annað,við erum löngu búin að reka okkur á þetta og gerum það bara,auðvitað erfitt en samt þessa virði/Halli gamli


mbl.is AGS krefst þess að stjórnvöld í Úkraínu beiti neitunarvaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta útspil AGS er alveg í stíl við þeirra vinnubrögð því að fyrr í vikunni lét AGS Swedbank í Svíþkóð vita af því að ef þeir drægju úr lánum til Lettlands vegna áhættu myndi sjóðurinn fella gengi Lattsins svo einfalt er það.

Svo höldum við að við ein hér uppi á skeri að enginn sé beittur valdboði af AGS því fer fjarri.

Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband