Arsenal tapaði dýrmætum stigum /svo bregaðst krostré sem önnur tré !!!!

Arsenal tapaði dýrmætum stigum
Íþróttir | mbl.is | 25.10.2009 | 18:14

Arsenal menn fagna marki Van Persie.Arsenal tapaði tveimur dýrmætum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið gerði 2:2 jafntefli gegn West Ham á Upton Park eftir að hafa komist í 2:0.

Arsenal tapaði tveimur dýrmætum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið gerði 2:2 jafntefli gegn West Ham á Upton Park eftir að hafa komist í 2:0.

 Það stefndi í öruggan sigur gestanna því eftir fyrri hálfleikinn var staðan, 0:2. Robin van Persie og William Gallas gerðu mörkin. Carlton Cole minnkaði muninn fyrir West Ham á 74. mínútu og sex mínútum síðar jafnaði  Alessandro Diamanti metin úr vítaspyrnu sem dæmd var þegar Cole féll við í vítateignum.

Scott Parker miðjumaðurinn sterki var rekinn af velli á 84. mínútu og á lokamínútum leiksins munaði minnstu að Arsenal tryggði sér sigur en Robert Green kom sínum mönnum til bjargar þegar hann varði með fætinum skot frá Van Persie af stuttu færi.

Arsenal hefur 19 stig eins og Tottenham í 3.-4. sæti en West Ham, sem hefur aðeins innbyrt einn sigur á tímabilinu, hefur 6 stig í næst neðsta sæti.///ekki var þetta  eftir bókin og nett áfall fyrir okkur stuðningsmenn,en svona er þetta og ekki gott,að missa þetta niður á síðustu mintum með unnin leik einnig svolitið sárt þar sem við hefðum náð öðru sætinu með vinning/en það kemur næst/Halli gamli 


mbl.is Arsenal tapaði dýrmætum stigum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón

já þetta var mjög sárt, við hefðum verið í fullkominni stöðu einungis stigi eftir ManU með leik til góða og 3 stigum eftir toppliðinu með leik til góða. En við skulum ekki missa móðinn. Ég sé fram á spennandi barráttu í seinni hluta tímabilsins

Jón, 25.10.2009 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1045678

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband