Vilja leggja niður alla aðstöðu til trúariðkunar innan HÍ/ gamli trúlausi kominn þarna en við lyði!!!!

Vilja leggja niður alla aðstöðu til trúariðkunar innan HÍ
Innlent | mbl.is | 31.10.2009 | 15:49

Háskóli ÍslandsStjórn Ungra vinstri grænna telur farsælast að leggja niður alla aðstöðu til trúariðkunar innan veggja Háskóla Íslands. Hún lýsir einnig furðu á því misrétti sem viðhefst milli trúarhópa innan HÍ, en aðeins þeir sem játa kristna trú hafa þar aðstöðu.
Múslímar hafa að vísu fengið aðgang að kappellunni um tíma en tekið hefur verið fyrir það að nýju. Komið hefur fram að hæstráðendur skólans hyggist koma upp sameiginlegri aðstöðu fyrir alla trúarhópa, að því undanskyldu að þeir sem tilheyra evangelísk-lúthersku kirkjunni fá að halda sinni sérstöku aðstöðu.

„Stjórn Ungra vinstri grænna gagnrýnir þessi áform harðlega, þar sem að greinilegt er að verið sé að mismuna fólki eftir trú þess. Stjórn Ungra vinstri grænna telur það ekki vera hlutverk Háskóla Íslands að byggja upp aðstöðu til trúarlegrar tilbeiðslu, slíkt á að vera á könnu trúfélaga en ekki menntastofnana.

Því telur stjórn Ungra vinstri grænna það farsælast í stöðunni að öll aðstaða til trúariðkunar verði lögð niður innan veggja HÍ. Auk þess sparast þar með pláss sem nýta má fyrir alla nemendur skólans - ekki veitir af,“ segir í tilkynningu frá stjórn UVG.///er gamli trúlausi komin þarna ennþá við  völd hjá V.G. en auðvitað er  trúfrelsi i landinu og það ber að virða kristina trú  er samt kennt þarna og sjálfsagt aðrar kenningar og trúleysi en þetta með kapelluna a má auðveldalega semja betur að allir trúflokkar faríð að njóta og þarf ekki að vera neitt mál,en V,G. eiga frekar að snúa sér að því að flýta aðskilnaði Ríkis og kirkju það er sparnaður mikill sem vert er að berjast fyrir/Halli gamli


mbl.is Vilja leggja niður alla aðstöðu til trúariðkunar innan HÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjátrú og fáfræði + kukl á ekkert erindi innan HÍ

DoctorE (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband