Opnaði sýningu með verkum Svavars/ ekki fynnst manni þetta listaverk,jú kannski litirnir!!!

Opnaði sýningu með verkum Svavars
Innlent | mbl.is | 31.10.2009 | 16:09

Erling Klingenberg myndlistarmaður og Ólafur Ingi Jónsson... Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands opnaði í dag yfirlitssýningu á verkum Svavars Guðnasonar í Listasafni Íslands. Sýningin varpar ljósi á þróun Svavars frá miðjum fjórða áratug liðinnar aldar til þess níunda.

Ólafur Ragnar sagði þegar hann opnaði sýninguna frá lítilli mynd eftir Svarvar sem er í Bessastaðastofu. Margrét Danadrottning gaf forsetahjónunum myndina stuttu eftir að Ólafur Ragnar var kjörinn forseti. "Myndina hafði hún fundið sjálf í galleríi í Árósum; fór fögrum orðum um sess Svavars í danskri listasögu, minnti á að hann var ekki aðeins einn hinna stóru á heimavelli Íslendinga heldur líka áhrifaríkur brautryðjandi á vettvangi norrænnar og evrópskrar málaralistar."

Ólafur Ragnar sagði að þegar Svavar kom heim frá Kaupmannahöfn, alkominn til Íslands, hafi svipmót menningarlífsins á Íslandi verið fátæklegt. "Hann yfirgaf ólgandi vettvang þar sem evrópskir straumar sköpuðu jafnan titring í lofti og hélt heim í kyrrlátt andrúmsloft þar sem list hans var mörgum framandi og á stundum fordæmd, umræðan löngum lituð af flokkadráttum í köldu stríði.


Það þurfti ríkulegt innra öryggi, listrænt sjálfstraust til að sækja fram við slíkar kringumstæður, halda áfram að vaxa að myndrænum krafti. En það gerði Svavar og hér getur að líta mörg hans bestu verka; verk sem sóttu hughrif í náttúruna en voru samt á heillandi hátt einkar sjálfstæð, túlkuðu litasinfóníu Íslands á ferskan hátt, blönduðu gulu, grænu og bláu í listræna ólgu."////auðvitað mega menn hafa sina skoðanir og ekkert með það !!! en að kalla þessa list finnst mer ekki mikið til koma,litirnir er jú fallegir og kannski má finna eitthvað út þarna ,sem þetta á að þýða/en svo  var einnig með nýju fötin keisarans,þar áttu men að sjá hann i ´fötum en engi þorði að segja neitt/en svo er þetta maður vann við liti i fjölda ár og hafi af oft gaman,en þessi málverk segja manni akúrat ekkert/halli gamli


mbl.is Opnaði sýningu með verkum Svavars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða skilyrði finnst þér að málverk verði að uppfylla til að teljast vera "listaverk" eða flokkast sem "list"?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 20:37

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

H.T.Barnason skilyrði mitt segir ekkert um það,þetta er bara mín skoðun og þarf alls ekki að túlka annarra skoðanir,en svo fantssíur eða afstrakt eru bara mér ekki að skapi og hafa ekki verið/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 31.10.2009 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband