Segir fullyrðingar Ragnars rangar/maður deilir nú í svona svör Gylfa!!!!

Segir fullyrðingar Ragnars rangar
Innlent | mbl.is | 10.11.2009 | 10:59

Gylfi Arnbjörnsson Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gagnrýnir orð Ragnars Þórs Ingólfssonar, stjórnarmanns í VR, í pistli sem hann hefur sent á fjölmiðla. Að sögn Gylfa eru fullyrðingar Ragnar rangar þar sem hann heldur því fram að minnisblað sem Ragnar vísar til á bloggi sínu sé komið frá ASÍ.

Ragnar bloggaði í gær um kistulagningu ASÍ og spurði hvort það væri rétt, að ASÍ hafi átt frumkvæðið að frestun launahækkana. Vitnar Ragnar  til minnisblaðs sem  framkvæmdastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins tóku saman um viðræðurnar við ASÍ í lok febrúar s.l. og sendu til aðildarfyrirtækjanna. Skorar Ragnar jafnframt á Gylfa að segja af sér embætti.

Gylfi segir það rangt hjá Ragnari að minnisblaðið sé frá ASÍ komið.  „Sú fullyrðing er röng eins og kemur reyndar fram í bréfhausnum auk þess sem efnistök sýna greinilega að svo er ekki.

Það er í rauninni ótrúlegt að stjórnarmaður í VR, sem er stærsta aðildarfélag ASÍ, skuli setja fram ásakanir um að samninganefnd ASÍ, þar sem í sitja forseti ASÍ, formenn allra landssambanda innan ASÍ, fulltrúi félaga með beina aðild auk formanna VR og Eflingar, hafi af ásetningi lagt sig fram um að hafa af félagsmönnum sínum umsamdar launahækkanir án þess að kynna sér betur opinber gögn í málinu," skrifar Gylfi í pistli sínum.///þetta þarf að skoða betur,.maður heldur að Ragnar hafa þarna mikið til sýns máls/þetta sem ASÍ er að gera er ekki alveg nógu gott,þarna er töluverður tvískynungur á ferð,því miður/Halli gamli


mbl.is Segir fullyrðingar Ragnars rangar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045703

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband