Olía lækkar á ný í verði/fer upp og niður ,allt gert til að hækka!!!!

Olía lækkar á ný í verði
Viðskipti | AFP | 10.11.2009 | 7:29

Horft út a sjó í Cancun í Mexíkó.Verð á hráolíu lækkaði á ný í viðskiptum í Asíu í morgun eftir að ljóst var að litlar líkur væru á því að fellibylurinn Ida myndi valda usla á olíuhreinsistöðvum í Mexíkóflóa. Verð á hráolíu til afhendingar í desember lækkaði um 39 sent í 79,04 dali tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York.

Verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í desember lækkaði um 27 sent og er 77,50 dalir tunnan í rafrænum viðskiptum í Lundúna

Ávöxtun norska ríkiseftirlaunasjóðsins nam 13,5% á þriðja ársfjórðungi og hefur aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi frá því Norðmenn hófu að leggja stærsta hlutann af olíutekjum sínum í sérstakan sjóð.

Sjóðurinn, sem jafnan er nefndur norski olíusjóðurinn, er stærsti einstaki fjárfestirinn á evrópskum hlutabréfamarkaði. Á þriggja mánaða tímabili frá júlí til septemberloka, óx hann úr 2385 milljörðum norskra króna í 2529 milljarða, jafnvirði um 56 þúsund milljarða króna.  

Norski seðlabankinn segir í yfirlýsingu, að þessa ávöxtun megi rekja til verðhækkunar á alþjóðlegum hlutabréfamarkaði og þess að jafnvægi sé nást á öðrum mörkuðum. Að auki runnu 49 milljarðar króna í sjóðinn vegna olíutekna.  

Markmiðið með sjóðnum er að fjármagna velferðarkerfi Noregs þegar olíulindirnar undan ströndum landsins þverra.///svona sjá menn hvernig þetta er hokus pókus verðlagning á oliu þetta er ekki gott fyrir heimin að þetta skuli bara vara svona engin getur  neitt nema að minka þessa notkun,búa til aðra orku sem við notum og það mjög svo fljótt/Halli gamli


mbl.is Olía lækkar á ný í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband