Hærri skattar fækka ferðamönnum/færri ferðamenn og innkoma minkar!!!

Hærri skattar fækka ferðamönnum
Viðskipti | Morgunblaðið | 14.11.2009 | 10:21

Leifsstöð. Rekstur Icelandair Group hefur að mestu gengið vel það sem af er ári, að sögn Boga Nils Bogasonar, framkvæmdastjóra fjármála fyrirtæHeildarvelta á þriðja ársfjórðungi jókst um tæpan þriðjung frá sama tímabili í fyrra og hagnaður fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir jókst úr 6,2 milljörðum í 8,4 milljarða.“ Þakkar Bogi árangurinn m.a. hagræðingaraðgerðum, sem farið var í vorið 2008, og einnig auknu markaðsstarfi erlendis.

Segir hann að fyrirtækið hafi stokkið á tækifæri eins og flug til Seattle, sem hófst í júlí. „Það flug skilar um fimm milljörðum í veltu á ársgrundvelli og umtalsverðum gjaldeyristekjum og skapar um hundrað störf hjá fyrirtækinu

Viðurkennir hann hins vegar að efnahagsreikningur Icelandair Group sé veikur og hafi verið allt frá árinu 2006. „Unnið er að endurskipulagningu hans. Sem dæmi má nefna að hlutfall skammtímaskulda er of hátt og erum við að vinna að því að laga það í samstarfi við okkar banka.“

Segist Bogi hins vegar hafa af því áhyggjur að hugmyndir ríkisstjórnarinnar um skatta á flugvélaeldsneyti og komur farþega á Keflavíkurflugvelli geti sett strik í reikninginn. „Hollendingar gerðu tilraun með að setja á sérstaka skatta á komu- og brottfararfarþega í júlí 2008. Reynsla þeirra var að komufarþegum fækkaði umtalsvert og að í stað þess að afla ríkinu 300 milljóna evra hafi það kostað hagkerfið 1,3 milljarða evra.“ Segir hann jafnframt að eldsneytisskattur muni hafa mikil áhrif á reksturinn.

„Reynsla okkar er sú að fyrir hvert prósentustig sem miðaverð hækkar þá fækkar farþegum um eitt prósent. Metum við stöðuna svo að verði þær hugmyndir um skattahækkanir, sem við höfum heyrt af, að veruleika muni farþegum til landsins fækka um tvö prósent, eða um 10.000, og gjaldeyristekjur þjóðarinnar dragast saman um þrjá milljarða.

Umsvifin í hagkerfinu muni því minnka með tilheyrandi lækkun skatttekna. „Það er verið að henda krónunni og hirða aurinn ef þessi aðgerð verður að veruleika. Það gera sér allir grein fyrir því að auka þarf tekjur ríkissjóðs en það eru til fleiri aðferðir en að hækka gjöld, t.d. geta ferðaþjónustan og hið opinbera unnið sameiginlega að því að stækka þá auðlind sem erlendir ferðamenn eru því það mun bæði auka gjaldeyris- og skatttekjur okkar þjóðarbús.“///þarna kemur þetta leint og ljóst i ljós hvernig menn misreikna sig á hlutunum út úr þessu  hlutum kemur tap,það er oft betra að hafa kapp með forsjá!!! þessar hækkanir á ferðamenn munu einfaldlélega fækka þeim mikið ekki spurning eins er þetta með skattahækkanir það mun koma mynna inn tiltölulega þegar upp er staðið men fara bar að vinna mynna til að lenda ekki i jaðarskatti  og svarta vinna eykst mikið,eins með vínið það verður bruggað og helmingi mína selst en ella,eins verður með kolefniskatti hann bara frystir farmkvæmdur og eyðslu,sqamdráttur á öllu mynni skattinar og allt fer sem alltaf hja´vinstri stjórum að ekkert nema fátækt og aumi-ngjaskapur þróast ,ef svo heldur sem horfur erum við föst i fátækt og umkomuleysi/Halli gamli

 


mbl.is Hærri skattar fækka ferðamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband