Pöntuðu 12 Airbus þotur í Dubai/þeir óttast ekki rafmangnið þarna????

Pöntuðu 12 Airbus þotur í Dubai
Viðskipti | AFP | 15.11.2009 | 15:04

Frá Dubai í dagÞrátt fyrir að ekki séu miklar væntingar um marga stórsamninga á flugsýningunni sem hófst í dag í Dubai þá er þegar búið að tilkynna um einn slíkan. Eþíópska flugfélagið gekk frá samningi við Airbus um að kaupa tólf A350 þotur en þær eru alls metnar á um þrjá milljarða Bandaríkjadala samkvæmt listaverði

Fyrstu vélarnar af þessari tegund sem um ræðir, A350 XWB (Extra Wide Body), að sögn Tom Enders, forstjóra Airbus sem skrifaði undir samninginn ásamt Girma Wake hjá Ethiopian Airlines.

Flugsýningin í Dubai stendur yfir í fimm daga og taka um 900 sýnendur frá um fimmtíu löndum þátt.//// þessirkallar þessir óttast ekki að eftirspurn eftir Olíu minki!!!og aðrir orkugjafar taki við,Rafmagn og fleira,hvað er i gangi ,það er verið að tala um byltingu þarna,en þeir eru bara vissir i að olían verði ofaná???Hvað er i gangi spyr maður bara/Halli gamli


mbl.is Pöntuðu 12 Airbus þotur í Dubai
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Ætti það að skipta flugfélagi í eþíópíu einhverju máli hvort að vellauðugir olíjöfrar í dubai missi olíuna sína ???

þurfa menn ekki samt sem áður að fljúga  næstu áratugina ?

Árni Sigurður Pétursson, 15.11.2009 kl. 16:32

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Nei og þó,olíufurstarnir kaupa þessar þotur sem einkaþotur með öllu/ og þar er Auðurin,en ekki hvar???auðvitað verður þetta flug allt rekið með þessu eldsneyti á fram eitthvað en ekki endalaust/ en þetta var meira svona grín!!!Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 15.11.2009 kl. 17:14

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Eþíópía er ellefu sinnum stærra land en Ísland með yfir 60 milljónir íbúa, eða 200 sinnum fleiri en Íslendingar. Samt er hagkerfi Eþíópíu minna en íslenska hagkerfið.

Í þessu stóra og fjölmenna landi eru átta einkaflugvélar.

Flugfélag Eþíópíu er eina fyrirtækið í landinu sem stenst samjöfnuð á alþjóðavísu og er þjóðarstolt Eþíópu.

Ómar Ragnarsson, 15.11.2009 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband