Um 5000 lögðu leið sína í Kost/vonum að þetta verði góður kostur !!!!

Um 5000 lögðu leið sína í Kost
Innlent | mbl.is | 15.11.2009 | 19:00

Viðskiptavinir í verslun Kost í Kópavogi. Annar dagurinn í sögu matvöruverslunarinnar Kostar hefur verið annasamur fyrir starfsfólk, að því er segir í tilkynningu. Löng röð myndaðist við verslunina rétt fyrir opnun í hádeginu í dag og fólk streymdi að fram eftir degi, þannig að örtröð myndaðist um tíma á bílastæðunum í kring.
Í gær tafðist fyrirhuguð opnun nokkuð vegna vandræða með tölvukerfi verslunarinnar. Þau vandræði hafa  nú að mestu verið leyst, en þó er enn nokkuð um vörur sem ekki finnast í tölvukerfinu og er því ekki unnt að selja.

Starfsfólk hefur unnið hörðum höndum að því að skrá allar vörur í tölvukerfið og fengu í dag góðan liðsauka úr hópi fjöskyldumeðlima og vina sem mættu til að létta undir með vinnuna.

Jón Gerald Sullenberger framkvæmdastjóri Kosts áætlar að fimm þúsund manns hafi lagt leið sína í í verslunina opnunarhelgina, laugardag og sunnudag. Fólk hafi verið að kynna sér vöruúrvalið og margir hafi notað tækifærið og gert helgarinnkaupin í versluninni. Jón Gerald vill þakka fyrir viðtökurnar, sem hafi komið sér í opna skjöldu. Einnig vill hann þakka viðskiptavinum þolinmæðina, en langar raðir mynduðust við afgreiðsluborðin vegna hins mikla mannfjölda sem var í versluninni.

Á morgun verður opið frá kl.11:00-18:30 sem verður fastur opnunartími Kostar virka daga,“ segir í tilkynningu.////við bara óskum Jóni Gerald Sullenberger framkvæmdastóra Kosts til hamingju með þennan áfanga,auðvitað taka allir sem þurfa á lágu vöruveði að halda þessu vel,þetta synir einnig að það er hægt að keppa við aðra um lægra vöruverð og þjónustu,ekki þessa neikvæni út i Bónus og Krónu og fleiri sem þarna eru/vonum bar að þetta gefi sig vel/Halli gamli


mbl.is Um 5000 lögðu leið sína í Kost
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045815

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband