Atvinnulífið eftirbátur þegar kemur að jafnrétti/þetta er bara ekki rétt !!!!!!

Atvinnulífið eftirbátur þegar kemur að jafnrétti
Innlent | mbl.is | 18.11.2009 | 9:30
Jóhanna Sigurðardóttir á blaðamannafundi forsætisráðherra... Aukin áhersla á jafnrétti og þrýstingur frá kvennahreyfingunni hafa ráðið úrslitum um að konum hefur fjölgað í stjórnmálum á Norðurlöndum undanfarin 15 ár. Í atvinnulífinu ráða karlar þó lögum og lofum enn sem fyrr. Þetta kemur fram í viðamiklu norrænu rannsóknaverkefni um kyn og völd í stjórnmálum og atvinnulífi. 
atvinnulífinu ráða karlar þó lögum og lofum enn sem fyrr. Þetta kemur fram í viðamiklu norrænu rannsóknaverkefni um kyn og völd í stjórnmálum og atvinnulífi.

Kyn og völd er fyrsta verkefnið þar sem valdastöður í stjórnmálum og atvinnulífi í norrænu ríkjunum og sjálfstjórnarsvæðum eru kortlagðar og bornar saman, að því er segir í tilkynningu frá Norðurlandaráði.

Tuttugu fræðimenn hafa rannsakað þróunina á undanförnum 15 árum og lagt mat á aðgerðir sem gripið hefur verið til í jafnréttismálum. Norræna kvenna- og kynjarannsóknastofnunin, NIKK, sá um framkvæmd rannsóknarinnar að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar. Niðurstöðurnar verða kynntar á ráðstefnu í Reykjavík í dag og á morgun.

Kynjajafvægi á þjóðþingum Ísland, Finnlands og Svíþjóðar

Ef miðað er við að kynjajafnvægi sé náð með 40-60% þátttöku hvors kyns má segja að það hafi tekist á þjóðþingum Finnlands, Íslands og Svíþjóðar. Í Danmörku og í Noregi er hlutur kvenna tæplega 40%.Fjöldi þingkvenna hefur aukist frá miðjum 10. áratug síðustu aldar í öllum ríkjunum nema Noregi en þar er fjöldi þeirra svipaður og áður, segir Kirsti Niskanen, rannsóknarstjóri hjá NIKK, í tilkynningu.

Í Danmörku hefur hlutur kvenna aukist hægt, í Finnlandi og Svíþjóð nokkuð hraðar en á Íslandi tók hann greinilegan kipp úr 25 í 43 af hundraði. Í Noregi og Svíþjóð er stjórnmálaflokkum frjálst að setja kynjakvóta á framboðslista og hafa þeir haft í för með sér að konum hefur fjölgað í stjórnmálum.Í Finnlandi eru persónukosningar, en fólk hefur verið hvatt til að kjósa konur og hefur það skilað góðum árangri.

Jafn margar konur og karlar í ríkisstjórn Íslands

Í norrænum ríkisstjórnum er tiltölulega jafnt hlutfall kynja. Aðeins í Finnlandi eru konur í meirihluta í ríkisstjórn (60% konur og 40% karlar) en í Noregi og á Íslandi eru jafn margar konur og karlar í ráðherrasætum. Í sænsku og dönsku ríkisstjórnunum eru rúmlega 40% konur. Enn er þó áberandi að konur og karlar beita sér á ólíkum sviðum stjórnmálanna, þrátt fyrir að dæmi séu um að konur hafi haslað sér völl á hefðbundnum karlasviðum eins og fjármálum, utanríkis- og varnarmálum á undanförnum 15 árum.

Mestur árangur hefur náðst í áberandi embættum þar sem fylgst er vel með. Í sveitarstjórnum er ekki lögð jafn mikil áhersla á jafnréttismál og því er hlutur kvenna þar rýrari en í landsmálapólitíkinni. Aðeins í Svíþjóð má segja að náðst hafi kynjajafnvægi í sveitarstjórnum en þar eru konur 42% fulltrúa. Finnar, Íslendingar og Norðmenn nálgast 40% mörkin en aðeins fjórði hver fulltrúi í dönskum sveitarstjórnum er kona.

„Ef við skoðum stjórnir sveitarfélaganna er útkoman enn verri, segir Kirsti Niskanen. Í Danmörku eru aðeins 7% borgarstjóra konur. Hlutur finnskra og íslenskra kvenna í sveitarstjórnum hefur aukist um 10 af hundraði frá miðjum tíunda áratug síðustu aldar, úr 20% í 27% en á sama tíma hefur konum aðeins fjölgað úr 16% í 23% í Noregi. Í Svíþjóð hefur hlutur kvenna verið um 30 % síðan um miðjan tíunda áratuginn.

Konur í stjórnum einkafyrirtækja fjölgar hægt

Í atvinnulífi hefur ekki orðið vart við sams konar breytingar og í stjórnmálunum. Fræðimennirnir báru saman valdakerfi í fyrirtækjum sem skráð eru í kauphöll og ríkisfyrirtækjum og komust að því að atvinnulífið er enn sem fyrr vígi karla með örfáum undantekningum.

Hlutur kvenna í stjórnum einkafyrirtækja á Norðurlöndum er á bilinu 7-36%. Kynjajafnvægi er meira hjá ríkisfyrirtækjum þar sem þau lúta yfirleitt ákvæðum jafnréttislaga um jafnan hlut kynjanna. Noregur sker sig greinilega úr en þar hafa verið settir kynjakvótar á stjórnir fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllinni. Kvótarnir fela í sér að í stjórnum fyrirtækja eiga að vera að minnsta kosti 40% konur og karlar.

Fjöldi kvenna í stjórnum allra fyrirtækja í kauphöllinni í Ósló (bæði norskra og erlendra fyrirtækja) hefur því aukist að meðaltali úr 9% í 2004 í 26% á árinu 2009. Í Svíþjóð hefur konum fjölgað úr 4% um síðustu aldamót í 19%. Fjölgunina í Svíþjóð má skýra með umræðu sem leiddi til þess að kauphöllin setti reglur sem kveða á um jöfn hlutföll kynjanna í stjórnum fyrirtækja.

Í hinum löndunum hafa slíkar breytingar ekki verið gerðar. Þó eru næstum eingöngu karlar í stjórnum einkafyrirtækja, jafnvel í þeim löndum þar sem hlutur kvenna hefur almennt aukist. Háttsettar konur er einkum að finna í fjármála- og fyrirtækjaþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Í sænskum fyrirtækjum sem skráð eru í kauphöllinni er hlutur kvenna meiri í stjórnum fyrirtækja með hátt gildi verðbréfa en minni hjá fyrirtækjum þar sem gildi verðbréfa er lægra. ////en og aftur er þetta  á dagkrá og kemur alltaf með jöfnu tímabili,þessi mél er  búið að ræða mikið og þetta er löngu komið i öfgar,maður sér ekki að þetta hafi þann tilgang sem  þetta þras gefur,þetta á eingöngu að sé með hæfni og dugnað ekkert með kyn gera!!auðvitað að ábara hæfðasta  fólkið að kom i þau okkar störf hverju sinni,en ekki bara kona vegna kyns,þessi áróður var þarfur einu sinni en hefur lagsat og á að gera það á þessum forsendum ekki öðrum/konur eru 50% af okkar og þær hljóta að geta komið að borði þarna og notað skinsemina ,eins og við kallar eigum að gera einnig/Halli gamli


mbl.is Atvinnulífið eftirbátur þegar kemur að jafnrétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband