Skattahækkanir koma verst niður ámillistéttinni/um leið þeirra einnig sem hafa mynst!!!

Skattahækkanir koma verst niður á millistéttinni
Innlent | mbl.is | 18.11.2009 | 16:07

Bjarni Benediktsson. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sér lítist mjög illa á skattahækkunaráform ríkisstjórnarinnar. „Það er augljóslega verið að flækja skattkerfið og draga úr hvata, bæði til vinnu og sparnaðar,“ segir hann. Hann segir millistéttina í landinu verða fyrir þyngsta högginu.
Þeir sem fara verst út úr þessu eru millistéttin. Það eru kynntar skattalækkanir á þá lægst launuðu, en ávinningurinn af þeim, sýnist mér, er að mestu tekinn til baka með óbeinum sköttum. Eftir sitjum við með mun flóknara skattkerfi, sem m.a. mun leiða til þess að hjón muni ekki njóta sambærilegra samsköttunarmöguleika eins og gilt hefur,“ segir Bjarni í samtali við mbl.is.

Hann segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi bent á leiðir til þess að forða millistéttinni í landinu og atvinnustarfseminni frá auknum álögum.

Hann bendir jafnframt á að stjórnvöld séu enn ekki komin með trúverðuga áætlun um það hvernig hún hyggist fjármagna og loka fjárlagagatinu.

„Ríkisstjórnin hefur greinilega farið algerlega fram úr sér með þeim hugmyndum sem teflt var fram í fjárlagafrumvarpinu,“ segir hann. Það sé t.d. búið  að draga úr skattlagningu á einstaklinga um 25 milljarða kr. miðað við það sem lagt hafi verið af stað með í fjárlagafrumvarpinu. Sama gildi um ýmsa aðra skatta.

„Eftir sitja skattar, sem fyrst og fremst munu leggjast á millistéttina í landinu, flækja skattkerfið, stórauka álögur á átvinnustarfsemina og, að okkar mati, eru líklegar til þess að viðhalda, lengur en nauðsynlegt er, atvinnuleysinu og draga krísuna á langinn.“///þetta er að mörgu leyti retta hjá Bjarna Ben.þetta vrður erfitt hjá þeim sem eru þarna á jaðrinum og auðvita- erfitt hjá flestum sem hafa bara dágóðar tekjur,en einnig þeir sem verst eru settir kaupleg og peningalega og ALDRAÐA OG ÖRYRKJA það eru 24,1%  + Útsvar og er það ekki 13,8% kvað er þá ekki 37.9% svo þetta er hækkun en ekki lækkun hja´okkur gamlingjunum/en eins og Bjarni segir eru þeir búnir að koma með margar leiðir aðrara en þetta/Halli gamli


mbl.is Skattahækkanir koma verst niður á millistéttinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband