Eldar og innbrotstilraun/það er i nógu að snúast hjá Lögreglu og slökkvilliði !!!!

Eldar og innbrotstilraun
Innlent | mbl.is | 23.11.2009 | 6:54

Mynd 502149 Lögregla og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinntu útköllum vegna bruna og spellvirkja við tvo skóla í nótt. Tilkynnt var um eld í skotbómulyftara við Urðarhvarf í Kópavogi kl. 01:23 í nótt. Lyftarinn er mikið skemmdur ef ekki ónýtur að mati slökkviliðsins.

Fimm rúður voru brotnar í Hlíðaskóla við Hamrahlíð í nótt. Ekki virtist hafa verið gerð tilraun til innbrots heldur að um skemmdarverk hafi verið að ræða. 

Nokkrir unglingar gerðu tilraun til innbrots í Hólabrekkuskóla við Suðurhóla. Tilkynnt var um innbrotstilraunina kl. 01:12. Piltarnir náðust allir og reyndust vera undir sakhæfisaldri, nöfn þeirra voru tekin niður og foreldrar sóttu þá til lögreglunnar.

Þá barst útkall vegna sinuelds við Korpúlsstaðaveg, nálægt Barðastöðum, kl. 05:26 í morgun. Það þykir nokkuð óvenjulegt að tilkynnt sé um sinueld á þessum árstíma. Eldurinn reyndist ekki útbreiddur og voru slökkviliðsmenn snöggir að kæfa hann.

Fáir gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt. Sumir þeirra fengu gistingu vegna heilsufars og blankheita.///já það' er i nógu að snúast hjá lögreglu og slökkvuliði í nótt og mikið að gera, engu eyrt og það er málið betra illt að gera en ekki neitt,þetta ekki gott mál nóg er nú fyrir að borga fyrir okkur Borgarbúa/Halli gamli  


mbl.is Eldar og innbrotstilraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband