Einangraðir frá klíkunni en ekki félagsmönnum/ ílla komið fyrir A.S.Í .og S.A. !!!!!

Einangraðir frá klíkunni en ekki félagsmönnum
Innlent | mbl | 23.11.2009 | 19:45

Vilhjálmur BirgissonFormenn verkalýðsfélaga á Akranesi og Húsavík eru einangraðir frá valdaklíkunni sem öllu vill ráða innan ASÍ, en hinn almenni félagsmaður stendur þétt að baki þeim. Þetta segir Vilhjálmur Birgisson í pistli á vef VLFA, þar sem hann eldar grátt silfur saman með formanni Rafiðnaðarsambands Íslands.

Það fer afskaplega í taugarnar á Guðmundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnaðarsambandsins, að formenn Verkalýðsfélags Akraness og Framsýnar á Húsavík hafi gagnrýnt samninganefnd Alþýðusambands Íslands harðlega fyrir þá linkind sem sýnd var við endurskoðun kjarasamninganna 25. febrúar og 25. júní.

Þetta segir í pistli eftir Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness, þar sem hann svarar Guðmundi vegna ræðu sem hann flutti á fundi trúnaðarmanna Rafiðnaðarsambandsins. Þar sagði Guðmundur að tveir fyrrnefndir formenn væru ekki talsmenn fjöldans í verkalýðshreyfingunni og tækju þar að auki lítinn þátt í umræðu hennar og stefnumótun á landsvísu.

„Guðmundur Gunnarsson formaður RSÍ talar um að áðurnefndir formenn séu einangraðir í verkalýðshreyfingunni. Það má vel vera að áðurnefndir formenn séu einangraðir hvað varðar valdaklíkuna sem öllu vill ráða, en hinn almenni félagsmaður stendur þétt að baki þeim, ef marka má skoðanakannanir sem Capacent Gallup gerði þar sem tvö stéttarfélög innan Starfsgreinasambandsins báru af og viti menn, það var Verkalýðsfélag Akraness með yfir 90% ánægða með starfsemi félagsins og Framsýn á Húsavík með 96% félagsmenn ánægða.

Það er þetta traust sem áðurnefndir formenn vilja njóta: traust félagsmannanna sjálfra. En það skiptir formenn VLFA og Framsýnar litlu máli hvort þeir njóti trausts valdaklíkunnar í Alþýðusambandi Íslands sem að mati formanns VLFA hefur misst öll tengsl við grasrótina og könnun leiddi í ljós að nýtur einungis trausts 25% landsmanna," segir Vilhjálmur Birgisson meðal annars í pistlinum.////þetta synir leynt og ljóst að það er komið breitt bil þarna í þessum samtökum og ber að skoða það vel, ASÍ og Rafiðnarsambandið eru að taka völdin þarna alveg af verkalystfélögunum um allt land og tala fyrir þau,einfallega geta það bara ekki,og þessu verður að breyta/Halli gamli


mbl.is Einangraðir frá klíkunni en ekki félagsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 13
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 1045790

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband