„Hljóta að hafa sínar ástæður“Auðvitað hafa þeir það,skoða um leið þjóðarhag !!!!

Hljóta að hafa sínar ástæður“
Innlent | mbl.is | 24.11.2009 | 12:23

Bónus er hluti Haga.„Ef ég skil þetta rétt var tekin ákvörðun um að taka ekki ákvörðun fyrr en eftir áramót, og ég tel ekki ástæðu til sérstakra viðbragða vegna þess," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um ákvörðun Arion banka að taka sér tvo mánuði til að meta tilboð um fjárhagslega endurskipulagningu 1998 ehf.
Þeir hljóta að hafa sínar ástæður fyrir frestuninni og ég hef enga ástæðu til að draga í efa að það sé skynsamlegt."

Tilboðið var lagt fram að Jóhannesi Jónssyni, erlendum fjárfestum og stjórnendum Haga. Ekki hefur komið fram hvað felst í tilboðinu annað en að samkvæmt því komi ekki til neinna afskrifta á skuldum vegna 1998.

Áður hafði lögmaður Þjóðarhags gengið á fund bankastjóra Arion og falast eftir Högum. Honum var tilkynnt að Hagar væru ekki til sölu. Í fjöldapósti sem sendur var út til þeirra sem skráð sig hafa á vefsíðu Þjóðarhags er Arion banki gagnrýndur. Segir að það virðist vera í mótsögn að endurskipulagning fyrirtækisins með nýjum eigendum standi fyrir dyrum, en fyrirtækið sé ekki til sölu.

Spurður hvort ekki sé ástæða til að auka samkeppni á matvörumarkaði segir Gylfi það raunar sjálfstætt mál. „Margir hafa áhyggjur af samþjöppun á ýmsum mörkuðum, en matvörumarkaðurinn er auðvitað mjög áberandi. Ég ætla að vona að þeir sem sýsla með innföllnu fyrirtækin og fyrirtækjasamsteypurnar taki tillit til samkeppnissjónarmiða."

Gylfi bendir á að samkeppniseftirlitið hafi beint þeim tilmælum til bankanna að hafa í heiðri samkeppnissjónarmið. "Hvort það verði niðurstaðan í þessu máli eða ekki vona ég og trúi að bankarnir taki tillit til þeirra sjónarmiða þegar þeir eru að leysa úr vandamálum fyrirtækjasamsteypa sem hafa haft mjög mikla markaðshlutdeild á tilteknum mörkuðum."///þetta mál er að taka á sig ofstæki sem ekki á að viðgangast,er ekki komið nóg af svoleiðis ,þetta fer að mynna mann á hundinn sem hvarf á Akureyri og allt i kringum það,það skal taka þetta af lifi hvað sem það kostar,er ekki komið tími til að stoppa við og skoða hlutina betur,ekki bara niða skóinn hver af öðrum,"sá yðar sem  syndlaus er kasti fyrsta steininum" segir biblían er ekki hægt að lofa þessu að gerast eins og efni standa til og leifa sem að skoðast, og kæra svo, Dómsstólar eru þarna og ber að skoða ef eitthvað ólöglegt er á ferð,en svona aðferðir eru ekki til framdráttar mínum mönnum ,um það er maður viss/Halli gamli


mbl.is „Hljóta að hafa sínar ástæður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband