Kynjahalli í æðstu stjórn fyrirtækja/enn og aftur komið að þessu!!!!!

Kynjahalli í æðstu stjórn fyrirtækja
Innlent | Morgunblaðið | 27.11.2009 | 10:30

Mynd 516229 Kynjahlutfallið er orðið fremur jafnt í stjórnum þeirra fyrirtækja sem heyra undir jafnréttislögin. Konum fjölgar hins vegar lítið sem ekkert í hópi æðstu stjórnenda eða stjórnarformanna.

Að sögn Guðbjargar birtist talsverður kynjahalli þegar kemur að æðstu stjórn efnahagslífsins. Sagði hún ljóst að opinber fyrirtæki hefði mörg hver jafnað kynjabilið meðal almennra stjórnarliða eins og jafnréttislögin kveða á um, en lítið sem ekkert hafi gerst umfram það. „Þótt kynjahlutfallið sé orðið fremur jafnt í stjórnum opinberra fyrirtækja, þá hefur hlutfall kvenna meðal stjórnarformanna og æðstu stjórnenda í þessum sömu fyrirtækjum lítið sem ekkert aukist á síðustu árum. Sömu sögu er að segja um stjórnun einkafyrirtækja,“ sagði Guðbjörg og tók fram að hugsanlega væri ekki hægt að laga þetta hlutfall nema með lögum eða kynjakvótum.

 Orkufyrirtækin karllæg

Í erindi Guðbjargar kom fram að árið 1999 var hlutfall kvenna meðal forstjóra í öllum fyrirtækjum á Íslandi 15% en áratug síðar var hlutfallið komið upp í 19%, sem er tilkomin vegna nýrra fyrirtækja. Konur voru 22% almennra stjórnarmanna árið 1999 en hafði fjölgað um 1% tíu árum síðar. Konur voru 22% stjórnarformanna bæði árin.

Sé aðeins horft til 120 stærstu fyrirtækja landsins má sjá að árið 2008 voru konur 8% forstjóra eða framkvæmdastjóra, 13% stjórnarliða og 11% stjórnarformanna. Ef litið er á kynjaskiptinguna í stjórnum fyrirtækja sem skráð voru í Kauphöllinni annars vegar árið 1999 og hins vegar 2007 kemur í ljós enn meiri kynjahalli, því konur voru aðeins 4% stjórnarliða í þessum fyrirtækjum fyrra árið en hafði fjölgað í 7% seinna árið. Árið 2000 var ein kona forstjóri fyrirtækis sem skráð var í Kauphöllinni, en engin árið 2007.

Sé litið til fyrirtækja sem ríkið átti a.m.k. helminginn í voru þau alls 27 talsins árið 2008. Kynjahlutfallið í stjórnum þessara fyrirtækja var nánast hnífjafnt. Á sama tíma var aðeins ein kona sem gegndi stjórnarformennsku í þessum fyrirtækjum. Guðbjörg gerði skort á konum í stjórnun orkufyrirtækja einnig að umtalsefni og benti á að engin kona var forstjóri eða gegndi stjórnarformennsku í þessum fyrirtækjum hvorki árið 2000 né 2008. Hlutfall kvenna í stjórnum orkufyrirtækja fór hins vegar úr því að vera 17% í 39%.

Sé horft til aðila vinnumarkaðarins má sjá að árið 2008 voru konur með 29% hlutdeild í framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins, voru 14% stjórnarmanna og 9% í fulltrúaráði samtakanna. Það sama ár voru konur 52% félagsmanna átta helstu samtaka stéttarfélaga á Íslandi, en þær voru aðeins 40% stjórnarmanna í stjórnum þessara félaga. Aðeins ein kona var formaður hjá samtökunum átta.////þetta er bara best hvað með öðru,en að taka bara konur kyns vegna er ekki það sem við viljum já heldur ekki kalla,þetta fer bara svona vitsmunalega og annað ekki kynferði ,sá sem er betri og dulgeri og hefur ekkert með kyn að gera ,þetta hefur verið mottó alltof lengi og ha´skolin hefur vist ekkert þarfara að gera en þetta!!!Hvernig er það með ríkisstjórnina þar er kynjahlutfalli 50-50 og ekkert er að að gerast sem við viljum/Halli gamli 


mbl.is Kynjahalli í æðstu stjórn fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband