Chelsea með stórsigur á Emirates/betra liðið vann nú!!!mínir menn ekki afskifaðir samt!!!

Chelsea með stórsigur á Emirates
Íþróttir | mbl.is | 29.11.2009 | 17:55

Didier Drogba kom Chelsea yfir og á hér í höggi við Bacary...Chelsea vann mjög sannfærandi útisigur á Arsenal, 3:0, í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fór á Emirates leikvanginum í London í dag.

Chelsea náði forystunni á 41. mínútu. Ashley Cole sendi þá boltann fyrir markið frá vinstri og á markteignum stýrði Didier Drogba honum uppí vinstra markhornið, í slána, stöngina og inn, 0:1.

Chelsea styrkti enn stöðu sína á 45. mínútu. Cole var aftur á ferð og sendi fyrir markið frá vinstri og við stöngina nær reyndi Thomas Vermaelen að hreinsa frá en sendi boltann slysalega í eigið mark, 0:2.

Drogba var aftur á ferð á 86. mínútu þegar hann innsiglaði sigur Chelsea með glæsilegu marki,  beint úr aukaspyrnu, 0:3.

Chelsea er með 36 stig á toppnum, fimm stigum meira en Manchester United. Arsenal er með 25 stig í fjórða sæti deildarinnar og á leik til góða.

Arsenal:Almunia, Sagna, Gallas, Vermaelen, Traore, Fabregas, Song Billong, Denilson, Nasri, Eduardo, Arshavin.
Varamenn: Fabianski, Rosicky, Vela, Walcott, Ramsey, Silvestre, Eboue.
Chelsea:Cech, Ivanovic, Carvalho, Terry, Ashley Cole, Mikel, Essien, Lampard, Joe Cole, Anelka, Drogba.
Varamenn: Hilario, Ballack, Malouda, Zhirkov, Paulo Ferreira, Deco, Kalou.///en svona fór þetta ,betra liðið vann núna,en gerum bar betur næst!!! við eigum leik til góða og vonum bar að menn fari að koma úr meiðslum/en svo er þetta maður verður að kunna að tappa einnig það eru ekki alltaf bara gleði þó maður beri sig vel,en við spyrjum að leikslokum/Halli gamli


mbl.is Chelsea með stórsigur á Emirates
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045684

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband