Varnarmálastofnun lögð niður/þetta gæti sem best verið undir Landhelgisgæslu!!!!

Varnarmálastofnun lögð niður
Innlent | mbl.is | 4.12.2009 | 19:27

VarnarmálastofnunRíkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu utanríkisríkisráðherra um að samræma niðurlagningu Varnarmálastofnunar og samþættingu verkefna hennar við hlutverk annarra opinb

Hvort tveggja byggir á samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem segir að Varnamálastofnun verði endurskoðuð í samræmi við áherslur í áhættumatsskýrslu fyrir Ísland, og að lögfest verði sameining samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og dómsmála- og mannréttindaráðuneytis í innanríkisráðuneyti fyrir lok kjörtímabilsins.

Varnarmálastofnun verður hins vegar lögð niður þegar á næsta ári eins og fram  kemur í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2010. Breytingum sem leiða af niðurlagningu hennar þarf því að ljúka fyrr og þær þurfa að rúmast innan óbreyttrar verkaskiptingar Stjórnarráðsins. Það felst m.a. í því að verkefni Varnamálastofnunar verða færð til þeirra borgaralegu stofnana sem næst standa verkefnum hennar í dag en jafnframt yrðu burðarás í fyrirhuguðu innanríkisráðuneyti. Samhliða þessu þarf að móta skýra framtíðarsýn um verkaskiptingu utanríkisráðuneytis og innanríkisráðuneytis í varnar- og öryggismálum.

Því mun verða skipaður starfshópur fimm ráðuneyta (forsætis-, utanríkis-, fjármála-, dóms- og mannréttinda-, og samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytis) til þess að undirbúa ofangreindar breytingar. Hópnum verður falin útfærsla eftir nánar skilgreindu umboði og stefnt að verklokum fyrir lok febrúar á næsta ári.

Með þessu skapast möguleikar á róttækri endurskipulagningu stofnana sem fara með öryggismál sem er til þess fallin að einfalda og skýra stjórnsýslulegt forræði málaflokksins. Verulegum fjármunum er í dag varið til öryggismála þjóðarinnar og breyting af þessu tagi er líkleg til að leiða til betri nýtingar á opinberu fé og auka skilvirkni stofnana. Jafnframt er þetta fyrirkomulag líklegt til þess að tryggja víðtæka sátt um öryggisstefnu Íslands og framkvæmd hennar sem eftir sem áður byggir á þeirri grunnforsendu að Ísland er og verður herlaus þjóð.

Umrædd breyting mun ekki hafa efnisleg áhrif á varnar- og öryggisskuldbindingar Íslands, s.s. þátttöku í starfi Atlantshafsbandalagsins, varnarsamninginn við Bandaríkin eða annað fjölþjóðlegt samstarf um öryggismál. Utanríkisráðuneytið mun eftir sem áður hafa forræði yfir utanríkispólitískum þáttum á borð við samskipti við NATO. Jafnframt verður með þessu skipting lagalegrar, stjórnsýslulegrar og fjárhagslegrar ábyrgðar skýr á milli utanríkisráðuneytis og fyrirhugaðs innanríkisráðuneytis, að því er fram kemur á vef utanríkisráðuneytisinserra stofnanana við áform um stofnun innanríkisráðuneytis./það er engin sparnaður a´að leggja niður og stofna annað batterí sennilega dýrara !!!!,þetta gæti sem best verið undir landhelgisgæslu,ekki veitir henni af peningunum og það þar sára litið þar um að bæta,innanríkisráðuneyti er bara verið að stofan þa´fyrir inngöngu okkar i ESB og ekkert annað,þetta er arfavitlaust og kemur ekki til greina/svona er þetta allt stefnir i ESB og það sjá allir sem vilja/Halli gamli


mbl.is Varnarmálastofnun lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband