Icesave-póstar á Wikileaks/nú verður hver að sjá sem vill !!!!!!

Icesave-póstar á Wikileaks
Innlent | mbl.is | 6.12.2009 | 22:24

 Tölvupóstsamskipti Indriða H. Þorlákssonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, og Mark Flanagan, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í málefnum Íslands, frá því í apríl voru í kvöld birt á vefnum Wikileaks en þar er m.a. fjallað um Icesave-viðræðurnar við Breta og Hollendinga.

Samkvæmt gögnunum á Wikileaks sendi Indriði Flanagan póst 13. apríl og segir honum að ekki hafi fengist ákveðin svör frá Bretum og Hollendingum um þessa nálgun að öðru leyti en því, að þeir séu tilbúnir til að skoða þessa leið. Hins vegar votti fyrir þvingunartóni í athugasemdum þeirra um að þeir kunni að að nota væntanlega endurskoðun á áætlun Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að knýja fram niðurstöðu sem sé þeim hagfelld.

Indriði segist vilja koma þessum upplýsingum á framfæri við Flanagan í þeirri von að hann kunni að geta haft áhrif á bresk og hollensk stjórnvöld og jafnframt að upplýsa hann um, að það sé ekki pólitískt mögulegt að ná samkomulagi um Icesave-skuldbindingarnar í samræmi við upphaflegar hugmyndir fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl og hugsanlega ekki í talsverðan tíma eftir það.

Flanagan svarar daginn eftir og segist vita að samningaviðræðurnar séu afar viðkvæmt mál á Íslandi og það muni taka tíma að ná niðurstöðu. Hins vegar skipti það máli fyrir endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og erfitt sé að þoka henni áfram fyrr en einhvert samkomulag liggi fyrir milli Íslands annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar.  Sjóðurinn geti hins vegar ekki blandað sér í þær viðræður en muni að sjálfsögðu svara þeim spurningum, sem Bretar og Hollendingar kunni að beina til hans. 

Datt Landsbankaaðferðin í hug 15. apríl

Í viðtali, sem birtist við Svavar Gestsson, sendiherra og formann viðræðunefndar Íslendinga í Icesave-málinu, í júní eftir að upphaflegt samkomulag hafði verið gert við Hollendinga og Breta, segir Svavar að ákveðin tímamót í viðræðunum hafi orðið 15. apríl  þegar formenn samninganefndanna funduðu á heimili Svavars í Kaupmannahöfn.

„Það var í raun úrslitafundur í málinu því þá datt okkur í hug þessi leið sem var farin, að ábyrgðarröðin yrði með þeim hætti að ríkið væri aftast, á eftir Landsbankanum og Tryggingasjóði innstæðueigenda,“ segir Svavar.

Umrædd leið snýst um, að Tryggingasjóður innstæðueigenda sé útgefandi skuldabréfs fyrir allri upphæð Icesave-skuldbindinganna, Landsbankinn beri ábyrgð á greiðslum sjóðsins og íslenska ríkið loks ábyrgð á greiðslum Landsbankans.

Gögn um Rússland

Einnig voru í kvöld birt á Wikileaks gögn um starfsemi þeirra Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar í Rússlandi fyrir og eftir síðustu aldamót og málaferli, sem þeir stóðu í við fyrrum viðskiptafélaga sína. ////þarf öllu meir skýringar á þessu en þetta,hefði ekki haldið það,þetta skirrir sig sjálft/Halli gamli


mbl.is Icesave-póstar á Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband