Stýrivextir lækka í 10%/gott fyrir marga ,ekki alla!!!!!!

Stýrivextir lækka í 10%
Viðskipti | mbl.is | 10.12.2009 | 8:59

Seðlabanki Íslands Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans. Verða vextir á sjö daga veðlánum, hinir eiginlegu stýrivextir bankans, lækkaðir úr 11% í 10%. Er þetta meiri lækkun en greiningardeildir höfðu spáð. Daglánavextir lækka um 1,5 prósentu í 11,5%.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana um 0,5 prósentur í 8,5%. Seðlabankinn mun áfram efna til útboða á innstæðubréfum til 28 daga með 9,75% hámarksvöxtum, en í því felst 0,5 prósentna lækkun hámarksvaxta innstæðubréfa.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði stýrivexti sína úr 12% í 11% í síðasta mánuði.

Í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka í gær kom fram að líklegt væri að Seðlabankinn lækki innlánsvexti um 25 punkta í dag.

Greining Íslandsbanka reiknaði með því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands myndi halda vöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni. Næsti vaxtaákvörðunarfundur peningastefnunefndarinnar er 27. janúar og taldi Greining Íslandsbanka að nefndin myndi ákveða að lækka vexti þá.///þetta er auðvitað gott fyrir flesta en svona er þetta þeir sem eiga pening fá ekki raunvexti og það ekki gott nema að verðtryggja þá fast i 3 ár,en fatt er svo með öllu illt að ey boði gott,það er verðbólgan sem ger8ir þetta hún svo ha´8,5% það er malið fyrir verðtrygg lán ,sem hækka alltaf stofninn og gera menn eignalausa/þetta er ekki rétt þrónum að taka ekki vátryggingu af nu um tíma/Halli gamli


mbl.is Stýrivextir lækka í 10%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband