13% vilja að samið verði við eigendur Haga/Hver á að borga þessa 40-50 milljarða!!!

13% vilja að samið verði við eigendur Haga
Viðskipti | mbl.is | 17.12.2009 | 9:33

Hagkaup og Bónus eru að stærstum hluta í eigu feðganna...Tæplega 97% aðspurðra telja ekki réttlætanlegt að samkomulag um eignarhald á Högum/1998 við núverandi eigendur feli í sér niðurfellingu skulda. Þetta er niðurstaða könnunar sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið. Einungis 13% styðja að samið sé við núverandi eigendur um að þeir

Þátttakendur voru einnig spurðir hvernig þeim fyndist réttast að Arion Banki (áður Nýja Kaupþing) ráðstafi eignarhaldi á félaginu. Alls töldu tæp 67% aðspurðra að ráðstöfunin færi fram með opnu útboði þar sem hæstbjóðandi fengi félagið. Þá töldu 13% að unnið yrði að samkomulagi við núverandi eigendur en rúmlega 20% að ráðstöfunin færi fram með einhverjum öðrum hætti.

„Málefni Haga og 1998 ehf. hafa verið nokkuð í umræðunni síðustu vikur. Í stuttu máli snýst málið um mikla skuldsetningu 1998 ehf. sem er eigandi Haga, sem rekur verslanir á borð við Hagkaup, Bónus, 10-11, Debenhams, Útilíf og fleiri.

1998 ehf. er síðan að stærstum hluta í eigu Gaums, sem síðan er í eigu fjölskyldu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Aðrir eigendur Haga eru Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs og Hreinn Loftsson en félög í þeirra eigu eiga sitthvorn 9% hlut í félaginu.

Skuldirnar eru taldar nema um 45 - 50 milljörðum króna. Arion Banki er stærsti kröfuhafinn í 1998 en viðræður milli bankans og eigenda 1998 hafa staðið yfir. Samkvæmt tilkynningu frá Arion Banka um síðustu mánaðamót stendur til að leysa málið í janúar," að því er segir í frétt Viðskiptablaðsins komi áfram að rekstri félagsins/////auðvitað er þetta fyrir viðskiptablaðið gert þar vilja menn þetta á sölu fyrir þá sem vilja alla samkeppni fyrir bí,það þarf að borga þessa 40-50 milljarða og hvar á að taka þá,ef fyrri eigendur gera þarna samning uppá að borga þetta er það ekki gott,þetta eru vel rekin fyrirtæki i dag,og það liggur beint við að semja við þá ,auðvitað verður að borga þetta allt,ekkert að gefa eftir með það,en það sem er átt við sölu og að brytja þetta niður er að taka ekki við skuldum heldu selja á prís sem væri ekki hálfvirði!!! er ekki heyra að þeir sem það gerðu fari bara i samkeppni á heiðarlegan hatt,en ekki að fá þetta gefins og láta okkur borga,eða ríkisbankana/Halli gamli


mbl.is 13% vilja að samið verði við eigendur Haga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband