Ögmundur: Tafir á Alþingi þjóna engum tilgangi/semsagt uppgjöf !!!!!!

Ögmundur: Tafir á Alþingi þjóna engum tilgangi
Innlent | mbl.is | 17.12.2009 | 11:38

Ögmundur JónassonÖgmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, fjallar um ýmsar hliðar Icesave á vef sínum. Þar kemur fram að þingmaðurinn telji að frekari tafir á afgreiðslu málsins á Alþingi þjóni engum tilgangi. Segir hann að þingmenn hafa komist - flestir, ef ekki allir - að niðurstöðu í málinu. Þorri stjórnarmeirihluta er staðráðinn í að samþykkja og stjórnarandstaða að hafna.

Alþingi ófært að komast að sameiginlegri lausn

Segir Ögmundur að það sé staðreynd að Alþingi hefur reynst ófært um að koma sameinað að lausn vandans, bæði vegna þess hvernig að málinu hefur verið staðið af hálfu stjórnarmeirihlutans og einnig vegna hins að stjórnarandstöðunni hefur ekki tekist að rísa yfir sjálfa sig og taka á málinu óháð flokkspólitískum hagsmunum. Fjölmiðlafólk hefur því miður alltof margt skipst í fylkingar eftir slíkum landamærum, skrifar hann á vef sinn.

Áhöld um lagalega greiðsluskyldu

Ögmundur segir að áhöld séu um lagalega greiðsluskyldu Íslands gagnvart breska og hollenska ríkinu. Breska og hollenska ríkið ásamt stuðningsliði í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu meina okkur að leita réttar okkar eftir reglum réttarríkis eða það sem réttara er: Breska og hollenska ríkið neita að leita réttar síns gagnvart íslenskum skattborgurum. Í þessu efni njóta breska og hollenska ríkið stuðnings Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins.

Óvissa sé um verðmæti eigna Landsbankans og þar af leiðandi hve mikið fellur á íslenska skattgreiðendur. Þetta kemur ekki í ljós fyrr en á reynir.

Hafa ekki lengur efni á nauðþurftum

Það sé staðreynd að greiðsla Icesave skuldanna verður erfið þótt ekki sé nema vegna vaxtakostnaðar.„ Það má hins vegar vel vera að þetta verði okkur gerlegt. Þannig sjáum við í spám Seðlabanka Íslands að við gætum orðið aflögufær um gjaldeyri því gert er ráð fyrir meiri afgangi í vöruskiptum við útlönd á komandi áratug en dæmi eru um í lýðveldissögunni.

En hvað þýðir þetta? Þetta þýðir að Íslendingar hætta að hafa efni á innkaupum erlendis frá í þeim mæli sem verið hefur, ekki bara bílum heldur hugsanlega einnig sneiðmyndatækjum á sjúkrahúsin, lyfjum og öðrum nauðþurftum velferðarsamfélagsins. Það er eitt að ráða við viðfangsefnið, annað á hvaða forsendum það er gert, hverjar afleiðingarnar eru í lífskjörum þjóðarinnar."

Ögmundur segir það staðreyn að í málflutningi sínum horfi fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrst og fremst á greiðslumöguleika íslenska efnahagskerfisins en ekki til afleiðinga fyrir samfélag og auðlindir sem við búum yfir.

Allt rætt undir rós og með bros á vör

„Allt er þetta rætt undir rós og með bros á vör. Eða hvað skyldi Flannagan, fulltrúi AGS, hafa átt við í Kastljósi Sjónvarpsins þegar hann segir Íslendinga hafa "geysilega aðlögunarmöguleika"til að borga himinháar skuldir sínar? Selja fiskikvótana, Landsvirkjun, OR, Gvendarbrunnana, virkja Gullfoss, Goðafoss, Jökulárnar í Skagafirði, Þjórsá, Landmannalaugar, Geysi? Spurt er í alvöru? Þetta er það sem Ísland á verðmætast."///semsagt uppgjöf algjör á málinu,bara borga og þegja,þetta er maðurinn sem margur hélt að væri á móti þessu og fleiri i hans flokki!!!Já lengi skal mannin  reyna,maður tekur ekki dýpra til orða,Þessir vinstri grænu eru búnir að selja sig til að samþykkja hvað sem er fyrir, stjórnarþátttökuna,hreina vinstri stjórn???meir að segja ESB einnig þar gefst þeir upp einnig,þetta fer að verða einum of að mínu mati/skildi fólkið sjá í gegnum þetta???kannski seinna en ekki eins og er vegna að kapítalistarnir komu okkur i þetta,og það i 18 ár,auðvitað var margt að þarna og ekkert að bara blak af því,en menn læra til hægri þó svo hinir geri það ekki,en vonandi að þetta verði allt skoða til botns og við borgum ekki skuldir óreiðumanna hvar sem þeir stóðu i flokkum/Halli gamli


mbl.is Ögmundur: Tafir á Alþingi þjóna engum tilgangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Ingvarsson

„Allt er þetta rætt undir rós og með bros á vör. Eða hvað skyldi Flannagan, fulltrúi AGS, hafa átt við í Kastljósi Sjónvarpsins þegar hann segir Íslendinga hafa "geysilega aðlögunarmöguleika" til að borga himinháar skuldir sínar? Selja fiskikvótana, Landsvirkjun, OR, Gvendarbrunnana, virkja Gullfoss, Goðafoss, Jökulárnar í Skagafirði, Þjórsá, Landmannalaugar, Geysi? Spurt er í alvöru? Þetta er það sem Ísland á verðmætast."

Ég held að við seljum okkur ekki út úr þessu heldur. Allt hér að ofan er verðmætt en ástæðulaust að halda að við getum selt þetta og grætt og borgað niður skuldafjallið. Mér finnst Ögmundur tala bæði í austur og vestur og átta mig alls ekki á því hvar hann stendur raunverulega. Mér finnst að hann hafi flúið frá erfiðu ráðuneyti. en rífa kjaft það getur hann.

Gísli Ingvarsson, 17.12.2009 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband