Ísland fær aðild að loftferðasamningi ESB og Bandaríkjanna /af hverju ekki ???erum í samstarfi og i EES.

Ísland fær aðild að loftferðasamningi ESB og Bandaríkjanna
Innlent | mbl.is | 18.12.2009 | 16:33

Skrifað undir samninginn í Brussel í gær. Ísland og Noregur hafa gerst aðilar að loftferðasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem skrifað var undir í apríl 2007 og tók gildi vorið 2008. Samningurinn veitir flugfélögum í löndunum tveimur aukinn rétt til farþega- og fraktflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skrifaði í gær undir samninginn í Brussel, fyrir hönd Íslands ásamt fulltrúum Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Undirbúningur vegna aðildar Íslands að samningnum hefur farið fram í utanríkisráðuneytinu og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Flugfélög á Íslandi og Noregi öðlast með samningnum sama rétt og félög í aðildarríkjum Evrópusambandsins til farþega- og fraktflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna. Er þeim heimilt að fljúga milli hvaða borga sem er í Evrópu og í Bandaríkjunum. Þá veitir samningurinn aukna möguleika á samstarfi milli flugfélaga beggja vegna Atlantshafsins svo sem til samvinnu um flugleiðir og leigu flugvéla svo og til eignarhalds evrópskra félaga í Bandaríkjunum og öfugt.///maður spyr bara af hverju ekki,við erum i samstarfi við þess aðila og i EES svo þetta er bara sjálfsagt,vona bara að Möllerin haldi ekki að þetta sé eitthvað skylt inngöngu i ESB,en samfylking er með það á heilanum/Halli gamli


mbl.is Ísland fær aðild að loftferðasamningi ESB og Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045680

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband