Engin straumhvörf með lögfræðiálitum/hverslags bull er þetta í manninum,er hann ekki læs ??

Engin straumhvörf með lögfræðiálitum
Innlent | mbl.is | 21.12.2009 | 17:30

Björn Valur Gíslason. Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, segir að engin straumhvörf hafi orðið í Icesave-málinu með lögfræðiálitum, sem borist hafa frá tveimur breskum lögmannssstofum, Ashurst og Mishcon de Reya. Stefnt er að því að afgreiða Icesave-frumvarpið úr fjárlaganefnd á morgun.

Börn Valur segir, að lögfræðistofurnar bresku séu nokkuð sammála um að um sé að ræða tiltölulega eðlilega samninga á milli þjóða. Það óvenjulega við samningana sé helst langur lánstími, að ekki þurfi að greiða af lánunum fyrstu sjö árin, vextir séu fastir og að greiðslur séu í samræmi við efnahagslegar forsendur. Þessi atriði séu öll frekar hagstæð Íslandi.

Í lögfræðiáliti  Mishcon de Reya er þeirri skoðun m.a. lýst að samningarnir séu hvorki skýrir né réttlátir. Björn Valur sagðist ekki átta sig á því hvaða atriði væru óskýr í samningnunum því öll grunnatriðin liggi fyrir: upphæðirnar, lánstíminn, vextirnir og hvað gerist ef ekki verður búið að greiða lánin upp árið 2024. 

Þá þætti engum Íslendingi réttlátt að þurfa að greiða þessar fjárhæðir en Björn Valur sagði það sitt mat, að ekki hefði verið hægt að ná lengra en með þeim samningum, sem nú liggja fyrir. 

Björn Valur sagði að í báðum lögfræðiálitunum kæmi fram, að ekki væri á vísan að róa ef Alþingi samþykkti ekki ríkisábyrgð á lánasamningana. Sagði Björn Valur, að þá myndu Bretar án efa höfða mál og væntanlega ekki láta sér nægja að krefjast lágmarkstryggingarinnnar, 20.887 evra vegna hvers Icesave-reiknings heldur allrar fjárhæðarinnar, sem var á reikningunum. 

Stenst stjórnarskrá

Þá sagði Björn Valur, að fjárlaganefnd hefði fengið skrifleg álit frá þremur lögfræðingum þar sem fram kemur að enginn vafi leiki á að Icesave-samningarnir og ríkisábyrgð vegna þeirra standist ákvæði stjórnarskrár. Um er að ræða sameiginlegt álit frá Björgu Thorarensen og Eiríki Tómassyni og álit frá Helga Áss Grétarssyni. 

Björn Valur sagði, að í samkomulagi sem gert var við stjórnarandstöðuna um meðferð Icesave-frumvarpsins, hafi verið kveðið á um að fjallað yrði um 16 tilgreind álitamál og að þriðja umræða um málið fari fram á Alþingi milli jóla og nýárs. Verið sé að ljúka umfjöllun um þessi atriði og væntanlega verði fjallað um þau síðustu á fundi nefndarinnar í kvöld. Miðað sé við, að fjárlaganefnd geti afgreitt frumvarpið til þriðju umræðu á morgun, sem er síðasti þingdagur fyrir jól.////hvað hefur komið fyrir þetta fólk V.G.er samfylking búin að heilaþvo ´þá algjörlaga,þessi Björn Valur  hvað hefur hann þarna sér til ágætis bara kjaftfor sjómaður sem,sennilega hefur ekki lesið skírslruna,bara standur við að V.G. verði áfram i ríkisstjórn og samþykki allt sem samfylking vill og þeir fa´að pína okkur skattalega i staðin og koma okkur aftur i aldir i öllu tilviki/annað er ekki að sja´i þessu skattmann og atvinnuleysi og fátækt/Halli gamli


mbl.is Engin straumhvörf með lögfræðiálitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045659

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband