Segir forsetann taka undarlegan pól í hæðina/er þetta foringjaefni V.G.: B.V.G.

Segir forsetann taka undarlegan pól í hæðina
Innlent | mbl.is | 2.1.2010 | 18:33

Björn Valur Gíslason.Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, segir forseta Íslands hafa tekið undarlegan pól í hæðina varðandi staðfestingu laga um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna, með því að hafa ákveðið að taka sér umhugsunarfrest í óákveðinn tíma.

Þetta kemur fram á bloggsíðu Björns Vals.„Forsetinn segist þurfa að hugsa málið betur sem er dálítið sérstakt þar sem hann hefur haft málið í eyrum og fyrir augum a.m.k. jafnlengi og þingmenn sem hafa myndað sér skoðun á því og samþykkt það á Alþingi. Forsetinn hefur sömuleiðis ákveðið að boða fulltrúa Indefence hópsins til fundar við sig en sá hópur hefur ekki viljað semja um lausn Icesave-deilunnar. En hvað með alla þá sem hafa viljað semja og klára málið eins og þegar hefur verið gert? Ætlar forsetinn að boða þá á sinn fund,“ spyr Björn Valur.

„Það verður að ætlast til þess að forsetinn leiti víða fanga við að kynna sér málið fyrst hann er jafn tvístígandi í afstöðu sinni og hann virðist vera. Ekki má hann skaða land og þjóð með ákvörðun sinni og því eins gott að vera með allar hliðar málsins á hreinu – eða hvað,“ spyr Björn Valur ennfremur.///manni dettur i hug að þessi viðsnúningur V.G. sé mikið ut af þessum B.V.G.hann  sé að  taka völdin og hinir allir snúist á hans linu sem Skipstjóra og næsta form flokksins,allir snúist með honum en ekki öfugt 360 gráður,þetta er ekki einleikið hvað hann hefur mikil áhrif Þarna,það er sagt að hann gaspri fyrir S.J.S.en er .það ekki öfugt/Halli gamli


mbl.is Segir forsetann taka undarlegan pól í hæðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Það hefði nú verið nærri því að fremja sjálfsmorð að skrifa undir á gamlársdag. Hann er fyrir löngu búin að ákveða hvað hann ætlar að gera.

Halla Rut , 2.1.2010 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband