Ósamstaða VG veikir stjórnina/Þessi ríkisstjórn á að fara frá !!!!!!!

Ósamstaða VG veikir stjórnina
Innlent | mbl.is | 27.3.2010 | 13:18

Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, segir að það hafi verið ljóst þegar ríkisstjórnin var mynduð að þeirra biði erfitt verkefni. Samfylkingin hefði hins vegar ekki vitað að það væri andstaða í hinum stjórnarflokkunum um mikilvæg verkefni í samstarfsyfirlýsingu flokkanna. Þetta hafi veikt ríkisstjórnina.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að það hafi verið ljóst þegar ríkisstjórnin var mynduð að þeirra biði erfitt verkefni. Samfylkingin hefði hins vegar ekki vitað að það væri andstaða í hinum stjórnarflokkunum um mikilvæg verkefni í samstarfsyfirlýsingu flokkanna. Hún útilokar ekki breytingar á ríkisstjórninni.

„Við vissum að stjórnarandstaðan myndi ekki axla ábyrgð. Við gátum vitað að hrunflokkarnir myndu taka upp aðferðir repúblikana í Bandaríkjunum og Íhaldsflokksins í Bretlandi í baráttu gegn ríkisstjórn. Við vissum að ekki yrði skirrst við að taka upp persónulegar árásir og gera út á óánægju fólks með sína erfiðu stöðu.

Hitt vissum við ekki að andstaða væri í öðrum stjórnarflokknum við mikilvæg verkefni í samstarfsyfirlýsingu flokkanna. Þar á ég einkum við efnahagsáætlun Íslands og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og lausn Icesave málsins. Hvort tveggja voru mál sem Alþingi hafði falið framkvæmdavaldinu að fylgja eftir og ríkisstjórnin var sammála um að ekki væri ráðlegt að skipta um hesta í miðri á úr því að lagt var í þá leiðangra að semja um Icesave málið og eiga samstarf um efnahagsáætlunina.

Ágreiningurinn um þessu mál hefur á undanförnum mánuðum veikt ríkisstjórnina og gefið færi á árásum á formenn stjórnarflokkanna," sagði Jóhanna er hún ávarpaði fund flokkstjórnar Samfylkingarinnar í dag.

Að sögn Jóhönnu hafi heldur ekki verið vitað þegar ríkisstjórnin var mynduð að forseti Íslands kysi að taka fjárstjórnarvaldið af Alþingi í erfiðri milliríkjadeilu. Það hafi þegar valdið miklum töfum á framgangi efnahagsáætlunarinnar og verulegum fórnarkostnaði sem seint mun vinnast upp í samningum um Icesave hvenær sem þeir komast á.

Engin lausn á Icesave fyrr en eftir kosningar í Bretlandi og Hollandi

Jóhanna segir að það sé að koma á daginn það sem hún varaði eindregið við í aðdraganda þjóaðratkvæðagreiðslunnar. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna hafi nú staðfest þetta og meðal annars sagt að engin líkindi séu á lausn Icesave fyrr en eftir kosningar í Bretlandi og Hollandi.

„Ríkisstjórnin mun á hinn bóginn knýja á um að Bretar og Hollendingar setjist að samningaborðinu að nýju og óskum þar að lútandi hefur verið komið á framfæri við þá. Boltinn er hjá þeim," segir Jóhanna.////það sjá allir sem vilja að þetta gengur ekki mikið lengur þarna,ESB er það sem Jóhanna einblínir á og að breyta öllu og bylta i stjarnaskránni eyðileggja kvótakerfið i staðin fykir að laga það um þetta er ekki samsatða og ,hún er farin að sja´sæng sina útbreidda um að þetta gengur ekki eftir/og a´að segja af sér kerlitningin/Halli gamli 


mbl.is Ósamstaða VG veikir stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af lestri ræðu Jóhönnu Sig er alveg dagljóst að Samfylkingin er farin að undirbúa stjórnarslit þar sem VG verður kennt um öll mistök ríkisstjórnarinnar. Nú er Steingrímur J í burtu og þá notar Jóhanna tækifærið og úthúðar samstarfsflokknum rækilega. Ég get ekki séð að VG geti sætt sig við þetta frumhlaup Jóhönnu svo sennilega deyr ríkisstjórnin drottni sínum um páskana. En tókuð þið eftir því í útvarpinu á föstudagskvöld að Steingrímur j sagði " Bandaríkin eru vinir okkar" ?. Já það er margt sérkennilegt sem gerist í VG en að formaðurinn fari að dásama bandaríkin er afar óvenjulegt. Hvað gerist næst stígur Álfheiður kommi fram og segir að Bandaríkin hafi alltaf verið vinur íslenskrar þjóðar og að best sé fyrir okkur að halla okkur að þeim ?

Heiða (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband