Hefur ekki áhyggjur af kjötinu/Það verður að taka á þessum málum umhverfissinna!!!!

Hefur ekki áhyggjur af kjötinu
Innlent | mbl.is | 2.4.2010 | 17:21

Hvalur verkaður í Hvalfirði. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segist ekki hafa áhyggjur þó 140 tonn af langreyðakjöti hafi verið flutt í land í Rotterdam. Hann hyggst finna aðra leið til að koma því til Japan. Hann segir skipafyrirtækið hafa hætt við flutninginn vegna hótanna hollenskra grænfriðunga.
Hópur hollenskra grænfriðunga hlekkjaði sig við landfestar flutningaskips í höfninni í Rotterdam í morgun og voru allir handteknir. Fullyrtu þeir að sjö  gámum með langreyðakjöti frá Íslandi hefði verið skipað um borð í skipið og ætti að flytja kjötið til Japans.

Kristján staðfesti að það væri rétt. Einnig að kjötið hafi verið flutt í land og skipafélagið neiti að flytja það áfram. Segir hann ástæðuna helst hótanir grænfriðunga í garð skipafélagsins. Hann segist að sjálfsögðu fylgjast grannt með enda miklir hagsmunir í húfi.

Skipið átti að leggja úr höfn áleiðis til Japans klukkan 16 að íslenskum tíma í dag. Kristján segir ekki víst hvað gerist næst, hvort kjötið verði flutt til Íslands eða beint frá Rotterdam til Japans.////á þessum málum verður taka ,þetta gengur ekki langur að þessir Grænfriðungar hagi sér svona,alþjóð verður að taka a´svona málum,Hollendingar eru a´móti hvalveiðum en þeir hafa alþjóðahafnir og verða að taka það alvarlega/þetta gengur ekki að haga sér svona/Halli gamli
/////


mbl.is Hefur ekki áhyggjur af kjötinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband