Ísland alræmt og þjóðin í sjálfsleit/erum við viðkvæm fyrir þessu????

Ísland alræmt og þjóðin í sjálfsleit
Innlent | AFP | 21.4.2010 | 10:28

Ólafur Eggertsson á Þorvaldseyri tók þessa mynd af...Ísland hefur ekki valdið jafnmiklum usla í Evrópu síðan víkingarnir voru og hétu, segir AFP fréttastofan í dag. Ísland sé nú alræmt um allan heim en þjóðin taki hamförunum með húmorinn á lofti ein þeir séu hinsvegar í mikilli sjálfsleit og náttúruhamfarirnar þjappi þjóðinni saman, ólíkt hinum manngerðu hamförum.

Ísland hefur ekki valdið jafnmiklum usla í Evrópu síðan víkingarnir voru og hétu, segir AFP fréttastofan í dag. Fyrst var það efnahagsleg sprenging, því næst sprengigos sem náði athygli umheimsins. Þetta segir AFP óvenjulegt fyrir þessa litlu 317.000 manna þjóð sem vakti áður litla sem enga athygli, að Björk undanskilinni.

Í dag sé Ísland hinsvegar heimsfrægt - alræmt jafnvel. Þrátt fyrir að Eyjafjallajökull hafi valdið litlu tjóni í heimalandi sínu, þar sem aðeins 700 bændur verði fyrir raunverulegum áhrifum, þá séu áhrifin ótrúleg í Evrópu og um allan heim þar sem flugfarþegar hafi setið fastir.

Blaðamaður AFP rifjar upp að þetta sé í annað sinn á stuttum tíma sem Íslendingar hrista ærlega upp í umheiminum og vísar í Icesave deiluna. Hinsvegar reyni þjóðin að takast á við þessar efnahagslegu og náttúrulegu hamfarir með húmorinn á lofti, og vísar m.a. í brandarana um að Bretar hafi viljað reiðufé en ekki ösku (cash, not ash) og að síðasta ósk hins deyjandi íslenska hagkerfis hafi verið að ösku þess yrði dreift yfir Evrópu.

„Með svona bröndurum takast Íslendingar á við þessi áföll og við þá nýju stöðu að vera allt í einu séðir sem vondu kallarnir í útlöndum," segir blaðamaður AFP. „Einn brandarinn fangar fullkomlega fáránleika þeirrar hugmyndar að Ísland, sem heldur ekki einu sinni úti her, sé að níðast á umheiminum: „Ætlar þú að abbast upp á Ísland? Þá lokum við öllum flugvöllunum ykkar"."

Svona brandarar segir blaðamaður AFP hinsvegar að séu aðeins gríma sem feli þá miklu sjálfsleit sem Íslendingar takist nú á við til að skilja hvernig þeim tókst að koma sér í vona mikil vandræði og hverjir séu ábyrgir.

En þrátt fyrir að þeir séu miður sín yfir bankaskandalnum segir AFP að Íslendingar finni ekki til neinnar sektar yfir vandræðunum sem Eyjafjallajökull veldur, þvert á móti virki eldgosið nánast sem plástur á þau félagslegu sár sem bólan í efnahagskerfinu olli. Íslendingar líti nú aftur til gamalla gilda og náttúruhamfarir sem þessar þjappi þeim saman, andstætt þeim hamförum sem voru af manna völdum.////já hvernig tökum við þessu,verum bar að láta sem þetta sé bara grín,en öllu gríni fylgir alvara og þetta er það!!!svona leyfist pressum erlendis að tala um okkur,og það ekki gott nema grín væri eingöngu/en það sem, erlenda pressan hefur haft við i okkar Icesave er einnig svona allt á anna vegin,við verðum að verja okkur en ekki gefst upp/Halli gamli  


mbl.is Ísland alræmt og þjóðin í sjálfsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

 Akkúrat þessi frétt er nú bæði raunsæ og frekar vilhöll Íslendingum Halli! mér finnst hún endurspegla miklu betur almenningsálitið hér úti á íslendingum, en ýmsar fyrri fréttir, þetta að þó alvaran sé íslendingum augljós bæði hvað varðar hrun og gos, þá er engin uppgjöf í gangi, og gálgahúmorinn notaður til að sleppa út bæði svekkelsi og ótta, meðan unnið er úr málunum.

Hafandi sagt það, þá er rétt hjá þér að mikið bull er búið að vera á erlendum fjölmiðlum, oft skrifað af vannkunnáttu, en semsagt hér er undantekning.

Kristján Hilmarsson, 21.4.2010 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband