Smáralind til sölu///Hver getur keypt????

Smáralind til sölu
Viðskipti | mbl.is | 28.4.2010 | 10:52

Smáralind.Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans, hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf. sem á og rekur verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi.

Seljandi hlutafjárins er Fasteignafélag Íslands ehf. sem er í eigu Regins. Fram kemur á heimasíðu Regins, að Fasteignafélag Íslands hafi átt í fjárhagserfiðleikum, en efnahagur Eignarhaldsfélagsins Smáralindar sé og hafi verið traustur.

Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð árið 2001. Hún er stærsta verslunarmiðstöð landsins og telur 62.730 fermetra og þar af nýtast 40.490 fermetrar undir verslun. Heildarfjöldi verslana og þjónustufyrirtækja er 95 og árið 2009 komu í Smáralindina um 4 milljónir viðskiptavina.

Söluferlið hófst 28. apríl 2010 og er opið öllum áhugasömum fjárfestum, sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 500 milljónir króna. Þeim fjárfestum sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu, ber að fylla út trúnaðaryfirlýsingu, veita upplýsingar vegna hæfismats og fullnægjandi staðfestingu á áðurnefndri fjárfestingargetu.

Starfsemi Eignarhaldsfélagsins Smáralindar felst í útleigu, rekstri, viðhaldi og uppbyggingu verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar. Kaupandinn verður einn eigandi húsnæðisins///"það kostar klof að ríaða röftum" segir máltækið GETIR NOKKUR ÍSLENDINGUR KEYPT ÞETTA, eg leifi mer að efast um það er hvað með erlent fjármang og men sem hafa áhuga mega þeir kaupa,en þetta kostar mikið og engin er öfundverður að rekstri nu um þessa mundir/Halli gamli


mbl.is Smáralind til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045654

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband