Frumvarp um strandveiðar samþykkt/ekki allir á eitt sáttir!!!!!

Frumvarp um strandveiðar samþykkt
Innlent | mbl.is | 30.4.2010 | 13:45

 Alþingi samþykkti í dag frumvarp sjávarútvegsráðherra um strandveiðar en samkvæmt því getur ráðherra ráðstafað 6000 lestum óslægðum botnfiski sem nýttar skulu til veiða með handfærum á tímabilinu frá 1. maí til 31. ágúst.

Frumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum en 14 þingmenn sátu hjá.

Talsverðar deilur hafa verið á Alþingi um málið. Við atkvæðagreiðsluna í dag sagði Sigurður Ingi Jóhannesson, þingmaður Framsóknarflokksins, að í frumvarpinu fælist talsvert opin heimild til ráðherra til að fara að vild með túlkanir á lögunum. 

Þá væri gert ráð fyrir því, að á næstu fiskveiðiárum væri gert ráð fyrir því að kvótinn, sem úthlutað verður, sé tekinn af öðrum og honum endurúthlutað.  Hins vegar hefu framsóknarmenn ákveðið að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna þar sem stuðningur væri innan flokksins við strandveiðar.

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að margir skavankar væru á frumvarpinu en sjávarútvegsráðherra hefði tekið um það ákvörðun um auka aflaheimildir um 6 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári og sagt, að þá aukningu sé að finna í þessu frumvarpi. Sjálfstæðismenn vildu ekki koma í veg fyrir að aflaheimildir verði auknar og því hefðu þeir ákveðið að sitja hjá.

Atli Gíslason, þingmaður VG, sagðist styðja frumvarpið stoltur og fagnandi og það gerði mikill meirihluti þingmanna. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að verið væri að færa byggðum landsins á ný rétt íbúanna til að nýta sér fiskimiðin við stendur landsins. Sagði hún að sú tilraun, sem gerð var um strandveiðar á síðasta ári, hefði tekist vel/////hlustað þetta og horfði áðan ,það var hægt að ná sátt um málið ef rétt hefði verið staði að því en það varað ekki,það á að taka þetta af öðrum kvóta næsta fiskveiíðtimabil sem er alveg áþarfi og skapar bara atvinnuleysi i greininni,svo þetta með svæðaskiptinguna þar á  Raðherra einn að ráða eftir því sem hann vill bara einn/er þetta það  sem  koma skal ,ekki hægt að ná ´samkomulegi um neitt/Halli gamli


mbl.is Frumvarp um strandveiðar samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Björn Guðjónsson

Ihaldið hefur alltaf verið á móti byggðum landsins,enda staðið fyrir að kaupa aflaheimildir burt fra sjávarbyggðum.Ihaldið þekkir ekki hvað er rettlæti.Byggðirnar eiga aflaheimildirnar í raun, þeim hefur bara verið stolið af þeim.

Árni Björn Guðjónsson, 30.4.2010 kl. 15:06

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Árni Björn Íhald er i öllum flokkum,að kenna eingöngu sjaldstæðisflokk um þetta er bara rugl stæðasti flokkur landsins og einnig mjög stór á landsbyggðini/horfðu til framtíðar maður,fortíð er liðin/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 30.4.2010 kl. 16:16

3 Smámynd: Árni Björn Guðjónsson

Auðvitað átti Framsókn þarna sök lika en ihaldið var í foristu með þetta.

Árni Björn Guðjónsson, 30.4.2010 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband